RE/MAX Ísland logo
Opið hús:19. mars kl 16:30-17:00
Skráð 16. mars 2026
Söluyfirlit

Hringhamar 19

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
135.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
129.900.000 kr.
Fermetraverð
955.850 kr./m2
Fasteignamat
73.550.000 kr.
Brunabótamat
10.420.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Guðrún Þórhalla Helgadóttir
Guðrún Þórhalla Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2024
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2529265
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
7
Hæðir í húsi
7
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já, penthouse svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
5 - Tilbúin til innréttingar
RE/MAX fasteignasala kynnir: Hringhamar 19, penthouse íbúð í Hamranesinu í Hafnarfirði.
Stórglæsileg penthouse íbúð í fallegu og sérlega vönduðu Svansvottuðu fjölbýlishúsi sem byggt er af traustum verkataka MótX. ÍBÚÐ 701 ER STÓRGLÆSILEG PENTHOUSE ÍBÚÐ MEÐ ÚTSÝNI OG NÆÐI SEM VERT ER AÐ SKOÐA, tveimur stæðum í bílageymslu og  - glæsilegum 69,9 fm þaksvalum. EIGNIN ER VÖNDUÐ Í ALLA STAÐI.
Bókaðu skoðun hjá Guðrúnu í síma 820-0490 eða hjá Gumma í síma 858-7410.

Hringhamar 19, penthouse íbúð 701 afhendist fullbúin með gólfefnum, ísskáp og innbyggðri uppþvottavél. Eignin er útbúin með sérstöku loftræstiskerfi. Kerfið hefur loftskipti í íbúðinni með því  að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu, og soga lofti út úr baði, þvottahúsi og eldhúsi. Fallegt umhverfi með góðum gönguleiðum, stutt í verslun og góðar samgöngur út úr hverfinu.


Eignin eru til afhendingar við kaupsamning.  Hringhamar.is - Heimasíða verkefnisins.

Íbúð 701: 133,9 fm 3 herbergja íbúð á efstu hæð ásamt tveimur stæðum í bílageymslu. Næg bílastæði á lóð. Íbúðin er 126 fm ásamt 7,6 fm geymslu. Tvö baðherbergi og 69.9 fm þaksvalir

Bókið skoðun hjá Guðrúnu í síma 820-0490 eða með tölvupósti á netfangið gudrun@remax.is eða á Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is 

Frekari upplýsingar um eignirnar:
Gólf íbúðar er olíuborin burstuð eik, nema á baðherbergi og í þvottahúsi en þar eru flísar á gólfum. Einnig eru flísar á veggjum baðherbergja, flísar eru frá Parka. Fataskápar í herbergjum og forstofu eru af vandaðri gerð frá Axis. Borðplötur eru í eldhúsi, baði og þvottahúsi þar sem við á og eru frá Axis.

Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis ásamt vaski og Grohe blöndunartækjum frá Byko. Helluborð og blástursofn eru af gerðinni AEG frá Ormsson (sjá nánar á www.ormsson.is) Gufugleypir í eldhúsi er einnig frá Ormsson.

Baðherbergi: Baðinnrétting kemur frá Axis. Hreinlætistæki og handklæðaofn eru frá Byko. Salernið er upphengt og innbyggt. Hitastýrð blöndunartæki verða við sturtu. Gólf eru flísalögð og veggir að hluta upp í loft

Loftræsting: Sérstakt loftræstikerfi er fyrir hverja íbúð. Kerfið hefur loftskipti í íbúðinni með því að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu, og soga lofti út úr baði, þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með varmaendurvinnslu og nýtir við bestu aðstæður um 80% af varmanum. Kerfið er með loftsíum og er allt loft sem kemur inn síað. Ekki á að vera þörf á að opna glugga í íbúðinni til loftunnar.

Frágangur sameignar: Anddyri/stigahús er lokað og er það flísalagt á aðkomuhæð með uppsettum póstkössum. Stigar og stigapallar eru teppalagðir, handrið eru á stigagöngum. Allar útidyrahurðir frágengnar og er rafmagnsopnun á aðalinngöngum. Sameign er upphituð með ofnakerfi. Raflagnir í sameign eru fullbúnar með ljósum, sbr. teikningar. Loftræstilagnir eru lagðar skv. teikningu.

Sameign: Í bílgeymslu er lagt grunnkerfi fyrir bílhleðslu. Eigendur stæða í bílgeymslu 
geta sett upp eigin hleðslustöð og tengt inn á grunnkerfi bílgeymslu


Skólar og leikskólar eru í nágrenni og eru öruggar göngu- og hjólaleiðir að þeim. Einnig er fyrirhugað að nýr leikskóli rísi í næsta nágrenni.
Hverfið er í nálægð við náttúru og er staðsetningin einstök með tilliti til útivistar. Í næsta nágrenni er Ástjörn, Hvaleyrarvatn og ein vinsælasta gönguleiðin í Hafnarfirði, upp á Helgafell.


MótX ehf. er byggingaraðili verkefnisins og eigandi. MótX ehf. er alhliða byggingafélag og var stofnað árið 2005 og hefur starfað óslitið síðan. MótX ehf. hefur getið sér gott orð sem framleiðandi íbúðar- og iðnaðarhúsnæðis á þessum tíma. Félagið hefur fengið viðurkenningar, bæði fyrir hönnun bygginga og frágang lóða á nýbyggingasvæði.

Allar nánari upplýsingar veita:
Guðrún Þórhalla Helgadóttir löggiltur fasteignasali/viðskiptafræðingur í síma 820-0490 eða á netfangið gudrun@remax.is
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða á netfangið gj@remax.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
Byggt 2024
Fasteignanúmer
2529265
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
60
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.210.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 2024
Fasteignanúmer
2529265
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
59
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.210.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Norðurbakki 17
220 Hafnarfjörður
130.5 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
919 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Norðurbakki 25a
220 Hafnarfjörður
128.4 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
413
1,012 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin