Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir einstakt 213,7 m2 hús með sögulegt gildi að Kornsá í Vatnsdal, Áshreppi, A-Húnavatnssýslu. Sýslumannshúsið að Kornsá er frá 1879, en var endurnýjað að stórum hluta á árunum 2000-2014 í samvinnu með Minjastofnun. Húsið er um 80 m2 að grunnfleti og er á þremur hæðum. Jarðhæð og 1. hæð eru um 160 m2 og rishæð 50 m2. Úr húsinu er útsýni yfir Vatnsdalinn og Vatnsdalsánna (laxá) sem svo rennur í Húnavatn. Steinhleðslulaug er á lóðinni.
Innbú og tæki geta fylgt.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is Eignin skiptist í forstofu, borðstofu, stofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og geymslur. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 213,7 m2.FRÉTT Í ÁGÚST 2026 -FALLEGASTA HÚS Á ÍSLANDI!
SMELLTU HÉR FYRIR NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINASmelltu hér til að fá söluyfirlit straxNánari lýsing húss:Jarðhæð, 80 fermetrar:Opið rými og þvottaaðstaða, panilklæddur, bjartur og fallegur.
1. hæð, 80 fermetrar:Stofa, borðstofa, eldhús, svefnherbergi, anddyri, salerni og miðrými.
Rishæð: 50 fermetrarÞrjú svefnherbergi, hol, og fjögur falleg kames sem nýst geta sem fataherbergi eða geymslur.
Húsið á lóðinni með torfþakinu er nýtt sem geymsla.Húsið byggði
Lárus Blöndal Sýslumaður. Þegar það var endurbyggt á árunum 2000 til 2014 var gætt að upprunalegum arkitektúr og byggingarstíl svo gamli stíllin og sjarmi hússins gæti notið sín áfram. Hurðir og dyraumbúnaður er upprunalegt, gólf að hluta og spjaldþil á veggjum. Húsið hefur bæði byggingarsögulegt og menningarsögulegt gildi. Staðurinn er í miðri hringiðu sögunnar um síðustu aftöku á Íslandi, þar sem Agnes Magnúsdóttir og Friðrik Sigurðsson voru hálshöggvin. Þess má geta að
bíómynd með m.a. Baltasar Kormáki í aðalhlutverki, “Agnes” fjallar um þessa harmþrungnu sögu. Einnig samdi
Bubbi Morthens lag um ódæðið. Staðurinn er einnig sögusvið metsölubókarinnar
Náðarstund eftir Ástralska rithöfundin Hannah Kent.
Landnámssetrið í Borgarnesi var með sýninguna
"Öxi - Agnes og Friðrik" árið 2020, en þá voru liðin 190 ár frá síðustu aftökunni á Íslandi. Aftakan átti sér stað að
Þrístöpum og má sjá staðsetningu þess sögufræga staðar hér.Rafmagnskynding er í húsinu og fyrir laugina og er það niðurgreitt.
Landeigandi hefur forkaupsrétt að íbúðarhúsinu.
3ja tíma akstur frá Reykjavík.
Hálftíma akstur á Blönduós þar sem alla þjónustu er að finna.
Hér eru gagnlegar upplýsingar frá Húnabyggð.-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-