Jörðin Syðsta – Samtún í Hörgársveit er til sölu. Einstök staðsetning með útsýni yfir Eyjafjörð og Vaðlaheiði, aðeins 5 km frá Akureyri. Upplýsingar gefur Óskar Bergsson, löggiltur fasteignasali í síma 893 2499 og oskar@remax.is Lýsing: Jörðin er rúmlega 90 hektarar og staðsett ca 5 km norðan við Akureyri. Staðsetning þessarar jarðar bíður upp á einstaka möguleika. Byggðin frá Akureyri hefur þróast í átt að Syðsta-Samtúni og er þéttbýliskjarninn Skógarhlíð í tveggja kílómetra fjarlægð. Við Þjóðveg 1 er búið að skipuleggja og byggja upp atvinnusvæði gengt austasta hluta lands Syðsta - Samtúns. Samkvæmt aðalskipulagi Hörgársveitar er jörðin á landbúnaðarsvæði, en af augljósum ástæðum er bújörð með staðsetningu svo nærri þéttbýli verðlögð og metin sem þróunarsvæði nálægt byggð. Húsakostur er kominn til ára sinna og umhverfið snyrtilegt. Íbúðarhúsið er byggt 1950, sambyggt með útihúsum og hlöðu og skiptist með eftirfarandi hætti: Gengið inn í þvottahús sem tengir saman íbúðarhluta og útihús. Eldhúsið er stórt rúmgott og bjart með útsýnisglugga. Aðalhæð hússins hefur verið breytt þannig að herbergjum hefur verið fækkað. Áður voru 4 svefnherbergi ein stofa og stórt eldhús og baðherbergi. Baðherbergi óklárað og rúmgott. Efri hæð er undir súð og hefur ekki verið nýtt til íbúðar. Búið að einangra gólf en vantar gólfefni. Efri hæðina mætti nýta til íbúðar. Brattur stigi upp í rýmið. Hesthús með gömlu innréttingum, hlaða með mikilli lofthæð og stórum dyrum til vesturs. Verkstæði er milli hlöðu og þvottahúss. Ljósleiðari og hitaveita. Gert er ráð fyrir göngu- og hjólastíg með Dalvíkurlínu sem liggur milli Akureyrar og Dalvíkur, meðfram þeim hluta jarðarinnar sem liggur að þjóðveginum. Fyrirhuguðu Blöndulína 3 mun liggja í gegnum landið og hefur seljandi samþykkt hana fyrir sitt leyti. Afstöðumyndin sýnir staðsetningu en ekki nákvæma stærð. Eign fyrir fjársterka aðila. Allar nánari upplýsingar gefur Óskar Bergsson, löggiltur fasteignasali í síma 893 2499 og oskar@remax.is