RE/MAX Ísland logo
Skráð 1. júní 2026
Söluyfirlit

Hrísmóar 10

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
97.5 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.500.000 kr.
Fermetraverð
815.385 kr./m2
Fasteignamat
72.600.000 kr.
Brunabótamat
46.430.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Katrín Eliza Bernhöft
Katrín Eliza Bernhöft
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1984
Þvottahús
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2070790
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Katrín Eliza Bernhöft löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX kynnir í einkasölu: HRÍSMÓAR 10, 210 GARÐABÆ

Mjög falleg, nýlega endurnýjuð og vel skipulögð tveggja herbergja íbúð í hjarta Garðabæjar. Íbúðin er staðsett í rólegu hverfi og með fallegu útsýni. Eignin er með stóru alrými þar sem eyja skilur á milli stofu og eldhús. Stórir gluggar í rýminu. Eitt svefnherbergi, baðherbergi með baðkari og og þvottaherbergi innan eignar. Inn af stofunni er annað rými sem er í dag notað sem skrifstofu- eða tómstundarherbergi. Það væri auðveldlega hægt að breyta því í annað svefnherbergi, borðstofu, betri stofu eða jafnvel stækka stofuna aftur.  Útgengt er á svalir frá stofunni og frá hjónaherberginu.

Eignin er í fjölbýlishúsi sem er hluti af eigninni Hrísmóar 8-10 sem er 12 íbúða fjölbýlishús. Rúmgóður bílskúr fylgir eigninni, geymsla og stórar hálfyfirbyggðar svalir sem snúa í suður. Sameignin er snyrtileg, góður sameiginlegur garður og næg bílastæði.


Verslunarkjarninn á Garðatorgi er í 2 mín göngufæri með iðandi mannlífi og alla helstu þjónustu, matvöruverslun, veitingarhús, ísbúð, heilsugæslu, o.fl. Leik- grunn- og framhaldsskólar í göngufæri og sundlaug Garðabæjar er í ca. 10 mín göngufjarlægð. Virkilega góð staðsetning, stutt á stofnbrautir og góðar almenningssamgöngur.

SMELLTU HÉR og skoðaðu þessa eign í 3-D (Ekki er þörf á sérstöku forriti)

Nánari lýsing:
Komið er inn í snyrtilegan teppalagðan stigagang.

Af stigagangi er gengið er inn í anddyri með góðu sérsmíðuðu skápaplássi. Í anddyri blasir við opin og björt stofa með góðu útsýni og opnu eldhúsi.

Eldhúsið er með nýlegri sérsmíðaðri innréttingu og góðri lýsingu. Eldhúsið er með bæði góðu skápa- og vinnuplássi.

Stofan er með stóra glugga sem snúa út í garðinn. Þaðan er útsýni yfir höfuðborgina og að Vídalínskirkju. Frá stofu er útgengt á stórar hálfyfirbyggðar suðursvalir.

Skrifstofu- /tómstundarrými er inn af stofu sem mögulega væri hægt að breyta í t.d. annað svefnherbergi, borðsofu eða annað.

Hjónaherbergið er með mjög rúmgóðum sérsmíðuðum skápum. Herbergið snýr að hljóðlátum garði og þaðan er einnig útgengt á svalir. 

Baðherbergið er flísalagt með stórum flísum á veggjum og gólfi. Gott baðkar með sturtu, upphengt salerni og vaskur ofan á fallegri hvítri innréttingu. Svört blöndunartæki sem tóna skemmtilega við ljóst baðherbergið. 

Þvottaherbergi er innan eignar. Mjög vel skipulagt með innréttingu og skápaplássi.

Íbúðin er öll parketlögð nema flísalagt er á baðherbergi og í þvottahúsi.

Svalir eru mjög rúmgóðar, með skjóli í hluta og snúa í suður.

Bílskúr sem er 20,3 fm fylgir eigninni. Hann er upphitaður, með aðgang að vatni og með inngönguhurð á bílskúrshurðinni.

Næg bílastæði. Skv. Eignakiptayfirlýsingu eru íbúðirnar í húsinu Hrísmóar 8 - 10 samtals 12 og bílastæðin eru samtals 18.

Sameignin er öll mjög snyrtileg. Í sameign er hjóla- og vagnageymsla, þar er einnig 5,6 fm geymsla sem er í séreign.

Íbúðin er virkilega aðlaðandi, björt og falleg, á frábærum stað með marga möguleika. Algjörlega þess virði að skoða.

Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 97,5 fm. Íbúðin er skráð 71,6 fm, bílskúr 20,3 fm og geymsla 5,6 fm. Auk þess eru rúmgóðar svalir, 12,4 fm sem snúa í suður. Eignin hefur fastanúmerið 207-0790, íbúð merkt 010302 og selst ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðaréttindum.

Fyrir söluyfirlit og allar nánari upplýsingar, hafðu samband:
Katrín Eliza Bernhöft löggiltur fasteignasali, s.699 6617, katrin@remax.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
  • Stimpilgjald af kaupsamningi - Einstaklingar 0,8% af heildarfasteignamati - Lögaðilar 1,6%.- (fyrstu kaup einstaklinga 0,4%)
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
  • Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk     
  • Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunnar.
Byggt 1984
20.3 m2
Fasteignanúmer
2070790
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
17
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.330.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Lynggata 3
210 Garðabær
92.7 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
881 þ.kr./m2
81.700.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Urriðaholtsstræti 24
210 Garðabær
90.2 m2
Fjölbýlishús með lyftu
32
886 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Lyngás 1
210 Garðabær
99 m2
Fjölbýlishús með lyftu
413
807 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Urriðaholtsstræti 28
210 Garðabær
77.9 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
1,026 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin