RE/MAX og Bára Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali kynna: GEITLAND 6, íbúð merkt 0202, BÍLSKÚR OG 2 SVALIR.Björt og falleg þriggja herbergja íbúð með tveimur rúmgóðum svölum, fallegu útsýni, þvottahúsi innan íbúðar, geymslu, bílskúr og snyrtilegri sameign. Eignin er í rólegu hverfi í Fossvogi með fallegum gönguleiðum í allar áttir þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttasvæði, verslunarmiðstöðina Kringluna, Skeifuna, Læknavaktina Austurveri og alla helstu þjónustu.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 147,4 m² sem skiptist í íbúð og geymslu samtals 126,50 m² og bílskúr sem er 20,9 m².
Íbúðin er merkt 250202 með fnr. F2037026 og bílskúrinn er merktur 290115.
Í sameigninni er sérgeymsla íbúðarinnar sem er 4,6 m² og hjóla- og vagnageymslur.
Óska eftir söluyfirliti hérErt þú í söluhugleiðingum? Hafðu samband hér á
bara@remax.is eða í síma 773-7404 og fáðu
FRÍTT VERÐMAT á þína eign án skuldbindinga.
Nánari lýsing:Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús og stofu/borðstofu, svalir út frá stofu, baðherbergi, hjónaherbergi með svölum, svefnherbergi 2, geymsla og bílskúr.
- Gengið er inn í forstofu með fataskápi og parketi á gólfi.
- Eldhúsið er afgirrt en í sameiginlegu rými með stofu/borðstofu. Parket á gólfum. Tengi fyrir uppþvottavél.
- Stofan er opin og björt, samliggjandi borðstofu, með partketi á gólfi, stórum gluggum og skrautvegg úr korki sem skapar hlýlegt yfirbragð. Í stofu er grófur áferðarveggur á miðju rýmis sem aðskilur stofu og borðstofu. Frá stofu er gengið út á mjög rúmgóðar svalir, 10,4 m², sem skarta glæsilegu útsýni til suðurs.
- Baðherbergið er flísalagt með sturtu, handlaug með skápaplássi og glugga með opnanlegu fagi.
- Hjónaherbergið er mjög rúmgott með partketi á gólfi, tvöföldum fataskápi og korkklæðningu á vegg. Einnig eru rúmgóðar 10,4 m² svalir út frá svefnherbergi.
- Barnaherbergið er parketlagt með góðu skápaplássi.
- Þvottahús er innan eignar við hlið eldhússins.
- Geymsla sem tilheyrir íbúðinni er á jarðhæð í sameign og er 4,6 m².
- Bílskúr merktur 290115 fylgir með hleðslustöð.
- Sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
Viðhald og endurbætur:2024 - 2025 : Gólfteppi í sameign endurnýjað ásamt dyrasímakerfi.
2024 : Ofnar innan íbúðar endurnýjaðir (að frátöldum ofni innan baðherbergis)
2022 : Húsið var múrviðgert og málað að utan, gluggar yfirfarnir skipt um þar sem þurfti.
2018 : Skipt um neðriplötur á gafli.
2017 : Drenað norðan hússins og meðfram gafli. Einnig var stéttin fyrir framan og aftan hús endurnýjuð og snjóbræðsla sett í hana.
2017 : Rafmagnstafla endurnýjuð í sameign.
2012- 2013 : Þakjárn og þakrennur endurnýjaðar
2010 : Skólplögnum skipt út.
Engar yfirstandandi framkvæmdir á vegum húsfélags.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir:Bára Jónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
RE/MAX senter
Skeifan 17 / 108 Reykjavík
E-mail: bara@remax.is
Sími: 773-7404
Vegma mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
Hafðu samband HÉR og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.Hér er
Facebook síðan mínHér er
heimasíða RE/MAXUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.