RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir:Töluvert endurnýjuð, björt og falleg 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á efri hæð. Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Í kjallara eru sérgeymsla og þvottaherbergi sem tilheyra íbúðinni, auk geymslurýmis í risi. Aftan við húsið er stór sólpallur sem er sameiginlegur með íbúð neðri hæðar.
Helstu kostir eignarinnar: - Sérinngangur og engin íbúð fyrir ofan. - Björt stofa með gluggum á tvo vegu. - Tvö svefnherbergi. - Eldhús og baðherbergi hafa verið endurnýjuð. - Nýlegir gluggar í allri íbúðinni. - Rafmagns-, hitaveitu- og neysluvatnslagnir innan íbúðar hafa verið endurnýjaðar. - Drenað í kringum húsið árið 2024. - Sérgeymsla og þvottaherbergi í kjallara.
Nánari lýsing: Forstofa: Gengið er upp steyptar útitröppur að sérinngangi íbúðarinnar. Dökkar flísar eru á gólfi forstofu. Hol: Miðsvæðis í íbúðinni er hol með harðparketi á gólfi og innfelldu fatahengi. Úr holi er aðgengi að öðrum rýmum íbúðarinnar. Stofa: Björt og notaleg stofa með harðparketi á gólfi og gluggum á tvo vegu. Rými er fyrir bæði setustofu og borðstofu. Eldhús: Falleg hvít innrétting í vinkil með viðarborðplötum og efri skápum, að hluta með glerhurðum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Dökkar flísar á gólfi og gluggi yfir vinnuaðstöðu. Svefnherbergi: Tvö björt svefnherbergi með harðparketi á gólfum. Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með sturtu og glerþili, hvítri vaskinnréttingu, speglaskápum, upphengdu salerni og handklæðaofni. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu. Baðherbergið hefur verið stækkað (stærra en á grunnmynd). Geymslur: Sérgeymsla fylgir í kjallara og einnig er geymslurými í risi yfir íbúðinni. Þvottaherbergi: Í kjallara er þvottaherbergi sem tilheyrir íbúðinni. Útisvæði: Stór sólpallur aftan við húsið er sameiginlegur með íbúð neðri hæðar. Framan við húsið er hellulögð stétt sem var endurnýjuð árið 2024, ásamt palli/stétt neðan við útitröppur.
Viðhald og endurbætur samkvæmt upplýsingum seljanda: 2020: Útihurð þétt og máluð og sett ný póstlúga. 2022: Þakpappi og þakplötur endurnýjuð, settur nýr þakgluggi og strompur klæddur. 2024: Drenað í kringum húsið og settur brunnur. Skólplagnir framan við húsið myndaðar og reyndust í lagi samkvæmt upplýsingum seljanda. Eldri skólplögnum hefur verið skipt út fyrir plastlagnir. Stétt framan við hús hellulögð og gerður nýr pallur/stétt neðan við tröppur. Þrýstijafnari settur á heitt vatn. Ljósleiðari lagður í húsið. 2025: Nýr ofn settur í eldhús. Ofnar íbúðarinnar nýlega yfirfarnir. Húsið hefur jafnframt verið steinað að utan og rennur endurnýjaðar.
Athugið: Meðfylgjandi grunnmynd sýnir ekki stækkun baðherbergis inn í annað svefnherbergið og endurspeglar því ekki að fullu núverandi herbergjaskipan.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir: Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is
Upplýsingar um þak: Samkvæmt upplýsingum seljanda eru gallar á uppsetningu þakplatna sem voru endurnýjaðar árið 2022 og þarf að fylgjast með ástandi þeirra á næstu árum.