RE/MAX Ísland logo
Opið hús:30. mars kl 17:00-17:30
Skráð 25. mars 2026
Söluyfirlit

Eskihlíð 10a

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
135.3 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
109.900.000 kr.
Fermetraverð
812.269 kr./m2
Fasteignamat
97.600.000 kr.
Brunabótamat
63.700.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Hera Björk Þórhallsdóttir
Hera Björk Þórhallsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1957
Þvottahús
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2029753
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta / ekki vitað
Raflagnir
Endurnýjað að hluta/ Upprunalegt
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta og yfirfarið/upprunalegt
Þak
Endurn. að hluta 2016
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
RE/MAX &  HERA BJÖRK Lgf. (s.774-1477 eða herabjork@remax.is) kynna: 
Sjarmerandi og vel staðsett 5-6 herbergja útsýnisíbúð á 4. og efstu hæð við Eskihlíð 10a í Hlíðarhverfi í Reykjavík.  
SJÓN ER SÖGU RÍKARI. 

* 4-5 möguleg svefnherbergi
* 2 fullbúin baðherbergi
* Rishæð sem hægt er að tengja inn í eign með stiga og nýta vel.


** SMELLIÐ HÉR fyrir ítarlegri upplýsingar og/eða bóka tíma í skoðun ** 
** SMELLIÐ HÉR til að fá söluyfirlitið sent samstundis **


Nánar um eign:  Eignin er samtals 135,3 m² og samanstendur af andyri & gangi, eldhúsi, stofu, borðstofu, þrem svefnherbergjum, tveim baðherbergjum, rishæð með herbergi og geymslu. Góð bílastæði og rafhleðslustöðvar ásamt sameiginlegu þvottahúsi og hjólageymslu. Sameign öll hin snyrtilegasta og vel rekið húsfélag. 

** SMELLTU HÉR og skoðaðu ÍBÚÐINA í 3-D, þrívíðu umhverfi.**

Nánari lýsing: 
Andyri: 
Gengið inn á bjartan gang og þaðan inn í önnur rými eignar. Góð geymsla/fataskápur með hillum og hengi. Vínilparket á gólfi.
Eldhús:  Falleg hvít eldhúsinnrétting með góðu vinnuplássi og skápaplássi í neðri skúffum/skápum.  Spanhelluborð, háfur, tvöfaldur ofn (blástur- og örbylgjuofn/grill), undirfelldur vaskur og blöndunartæki með útdraganlegum krana. Tengi fyrir uppþvottavél.  Gott rými fyrir eldhúskrók. Vinilparketi á gólfi.
Stofa:  Stofan er björt og opin með gólfsíðum gluggum og vínilparket á gólfi. Úr borðstofu er gengið út á suðvestur svalir með fallegu útsýni til yfir borgina og til fjalla. Parket á gólfi, opið er á milli stofu og borðstofu með rennihurð. 
Borðstofa:  Er inn af stofu með rennihurð á milli rýma. Möguleiki að nýta sem svefnherbergi ef vill. Parket á gólfi. Úr borðstofu er gengið út á flísalagðar suðvestur svalir með fallegu útsýni yfir borgina og til fjalla. 
Baðherbergi I: Er mjög rúmgott og vel nýtt rými með tveim gluggum og opnanlegum fögum.  Flísalagt í hólf og gólf með hornbaðkari, stórum handklæðaofni, upphengdu salerni, innréttingu með góðu geymsluplássi og spegli. Gott pláss fyrir þvottavél og þurrkara ásamt penum skáp. 
Baðherbergi II:  Flísalagt í hólf og gólf með sturtuklefa, upphengdu salerni, handklæðaofni og speglaskáp fyrir ofan vask.
Hjónaherbergi:  Bjart og rúmgótt með fataskápum og parket á gólfi. Fallegt útsýni yfir Öskjuhlíðina og til fjalla í suðaustri. 
Svefnherbergi I: Bjart með parketi á gólfi. Á svefnherbergisgangi er rúmgóður fataskápur.
Svefnherbergi II:  Bjart með parketi á gólfi. Á svefnherbergisgangi er rúmgóður fataskápur.
Rishæð:  Af stigagangi er stigi upp í risið. Þar er búið að einangra loft og útbúa gott herbergi inn af geymslu íbúðarinnar sem nýtist nú sem vinnuherbergi. Möguleiki er að opna upp í risið með stiga úr íbúð. Rishæðin liggur yfir allri íbúðinni og eru uppgefnir m² en mældir fermetrar 38,7 m² en eingöngu 11,5 m² inni í skráðum fermetrafjölda. 
Geymsla: Er í risi og er skráð 11,5 m². 
Hjóla- og vagnageymsla: Er í sameign í kjallara. 

Nánar um húsið:
Eskihlíð 10a er partur af fallegu 4ra hæða fjölbýlishúsi byggðu 1957 í Hlíðunum. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin. Skipt var um þak í kringum 2016 og húsið svo steypuviðgert, svalir endursteyptar og það steinað í kjölfarið. Búið er að skipta um glugga á þremur hliðum á undanförnum árum og þeim vel viðhaldið og þeir þéttir reglulega af húsfélagi. Bílaplanið var tekið í gegn 2020 og þá voru einnig settar upp rafhleðslustöðvar og brunnar uppfærðir.  Hiti er í tröppum og stétt fyrir framan húsið. Íbúðin sjálf hefur einnig fengið gott viðhald á undanförnum árum, var tekin alveg í gegn í kringum 2005 og síðan hefur verið sett vínylparket á hluta, rafmagn yfirfarið, hurðir sprautaðar og skipt um hurðahúna. 

Um er að ræða vandaða eign á þessum vinsæla stað miðsvæðis í borginni og mjög þægilegri í nálægð við útvistar- og náttúrusvæði eins og Öskjuhlíðina og Nauthólsvíkina. Stutt er í miðbæ Reykjavíkur og fallegar gönguleiðir meðfram sjávarsíðunni og þjónustukjarnana í Austurveri og Kringlunni, en þar er úr margvíslegri þjónustu að velja.  Gott aðgengi út á helstu umferðaræðar og stutt í almenningssamgöngur með strætótengingar við öll hverfi höfuðborgarsvæðisins. Þetta er góð fjölskyldueign sem vert er að skoða!

Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í þrívíðu umhverfi, ferðast auðveldlega á milli herbergja og kynnt þér rýmið.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Hera Björk, löggiltur fasteignasali í 774-1477 og/ eða á herabjork@remax.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.600 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
__________________________
Ertu í fasteignahugleiðingum?

Ég hef starfað við fasteignasölu frá árinu 2016 og hef á þeim tíma byggt upp góða reynslu og þekkingu á markaðnum. Fyrir mér skiptir máli að ná góðu verði og leiða viðskiptavini örugglega og faglega í gegnum stærstu fjárhagslegu ákvarðanir lífsins.
Ég legg ríka áherslu á vönduð vinnubrögð, skýr samskipti og markmið mitt er einfalt: að hámarka verðmæti eignar og tryggja faglegt, skilvirkt og árangursríkt söluferli. Ég legg mig fram um að veita persónulega þjónustu með hagsmuni viðskiptavina í forgangi, öryggi og traust frá fyrsta samtali til afhendingar.
Hafðu samband fyrir frítt og skuldbindingarlaust verðmat ásamt greinargóðri ráðgjöf um næstu skref. 
 774-1477 / herabjork@remax.is.

 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Flókagata 57
105 Reykjavík
119.7 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
41
986 þ.kr./m2
118.000.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Miklabraut 90
105 Reykjavík
154.1 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
412
712 þ.kr./m2
109.700.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Álftaland 7
108 Reykjavík
119.4 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
624
837 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Laugavegur 96
101 Reykjavík
145.9 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
212
719 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin