RE/MAX & BJARNÝ BJÖRG KYNNA: Fallega 4-5 herbergja eign að Hulduhlíð 26. Eignin er skráð 93,0 fm samkvæmt HMS með tveimur merktum bílastæðum. Íbúðin skiptist í stofu, borðstofu og eldhús í opnu alrými, baðherbergi, forstofu, gang og ca 15 fm rými á efri hæð sem er notað í dag sem barnaherbergi, þeir fermetrar eru ekki inn í skráðum 93 fermetrum eignarinnar sem sagt eru þá um 108 fm nýtanlegir fermetrar.
Eign sem vert er að skoða í sérlega fjölskylduvænu hverfi.Allar nánari upplýsingar veitir:
Bjarný Björg Arnórsdóttir, lgf., í síma 694-2526 eða á bjarny@remax.is** SMELLTU HÉR og skoðaðu EIGNINA í 3-D, þrívíðu umhverfi.**Forstofa er með góðum fataskáp og harðparket á gólfi.
Eldhús er bjart með hvítri innréttingu, tvöfaldur ísskápur og uppþvottavél. Opið við borðstofu og stofu.
Borðstofa/stofa er rúmgóð með útgangi á suðvestur svalirnar.
Herbergin eru þrjú á hæðinni öll með hvítum fataskápum. Búið að setja stiga upp á loft undir súð og gera gott íveru herbergi þar, ca 15 fm gólfflötur sem er ekki skráð í fermetrum hjá FMR.
Baðherbergið hefur verið endurnýjað með ljósum flísum, sturtu í baðkar, handklæða ofni, hvítum handvaski í góðri innréttingu úr ljósum við.
Þvottavélarými stúkað af með ljósum viðarhurðum í samræmi við baðinnréttinguna.
Sér geymsla er úti með inngangi við hlið íbúðarinngangs.
Geymsluloft sem liggur í kring um 15 fm íverurýmið. Hleri á gangi til að komast upp á það.
Bílastæði: Tvö sérmerkt bílastæði fyirir framan innkomu á lóðina fyrir þessa íbúð ásamt fleiri ómerktum stæðum.
Falleg sameiginleg lóð með trjágróðri, grasflöt og hellulagt að framan.
Framkvæmdir samkvæmt seljanda og eldri söluyfirlit:Þak var yfirfarið og lagað á síðasta árið 2024.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Bjarný Björg Arnórsdóttir, lgf., í síma 694-2526 eða á bjarny@remax.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
__________________________
Ertu í söluhugleiðingum?
Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við verðmetum þína eign þér að kostnaðarlausu__________________________
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk