RE/MAX Ísland logo
Opið hús:05. nóv. kl 16:00-16:45
Skráð 1. nóv. 2026
Söluyfirlit

Stóragerði 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
116.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
77.900.000 kr.
Fermetraverð
667.524 kr./m2
Fasteignamat
76.400.000 kr.
Brunabótamat
59.460.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Löggiltur fasteignasali / Viðskiptafræðingur
Byggt 1961
Þvottahús
Garður
Útsýni
Gæludýr leyfð
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2033305
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Sjá skýrslu 28.12.2025
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
sjá skýrslu 28.12.2025
Gluggar / Gler
sjá skýrslu 10.12.2025
Þak
sjá skýrslu 10.12.2025
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
2: Norðaustur og Suðvestur
Upphitun
Lofthiti /Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Guðbjörg Helga og Gylfi Jens hjá RE/MAX kynna í einkasölu einstaklega skemmtilega, bjarta og vel hannaða 4 herbergja íbúð á 3. hæð með bílskúr og einkabílastæði framan við hann. Íbúðin er vel skipulögð og hefur verið mikið endurnýjuð, m.a. innréttingar og gólfefni. Tvennar svalir (norðaustur og suðvestur) eru í íbúðinni, Uppgefin heildarstærð skv HMS er 116,9 fm en auk þess er um 7 fm aukageymsla í kjallara utan uppgefinna fm. Íbúðin er 95,8 fm og bílskúrinn 20,9 fm.  Heildarraunstærð er því um 124 fm. Virkt húsfélag er í húsinu  Íbúðin getur verið laus fljótlega. Möguleiki er að kaupa flestöll húsgögnin ef áhugi er fyrir því. Fasteignamat 2027 hækkar í 78.050.000 kr. 

Allar nánari upplýsingar og tímapantanir fyrir skoðun:
Guðbjörg Helga, löggiltur fasteignsali og viðskiptafræðingur s. 897 7712, gudbjorg@remax.is
Gylfi Jens, löggiltur fasteignasali og lögmaður, s. 822 5124, gylfi@remax.is

SKIPULAG EIGNAR: Forstofa, hol, stofa/borðstofa, 3 herbergi, eldhús, baðherbergi með þvottavélaaðstöðu, tvennar svalir, geymsla í íbúð, geymsla í kjallara og bílskúr með einkabílastæði.

NÁNARI LÝSING: 
Fljótandi harðparket er á allri íbúðinni utan baðherbergis sem er flísalagt. Hvítlakkaðar hurðir.
Forstofa: Eikar eldvarnarhurð er inn í íbúðina. Rúmgóður skápur fyrir yfirhafnir með speglahurðum og hvítum hurðum.  
Hol: Tengir saman öll rými eignarinnar. Pláss er fyrir hillu framan við herbergi I. 
Stofa/borðstofa: Rúmgóð stofa með mjög stórum L-laga sófa í dag og útgengi á suðvestursvalir. Stór stofugluggi með tvöföldum gardínustöngum. Borðstofuborð er í einum enda stofunnar. Hægt er að stækka stofuna á kostnað herbergis III, ef ekki er þörf á því. Nýtt rakastýringartæki með fjarstýringu er ofan við svalahurð. 
Eldhús: Ljósgrá með u-laga innréttingu. Efri skápar á einum veggnum eru með glerhurðum sem gefa innréttingunni skemmtilegan stíl. Flísar eru ofan borðplötu á vinnusvæði á og við helluborð. Borðplatan er hvít með marmaraáferð. Nýr bakaraofn (2026) í ábyrgð staðsettur undir borðplötu. helluborð, veggháfur. Kringlóttur vaskur í borðplötu með góðu blöndunartæki með góðum losanlegum vinnuvatnsstút á. Við borðkrók eru álímdir hvíldarpúðar á vegg (auðvelt að fjarlægja). Tengi fyrir ísskáp. Opnanlegur gluggi í enda eldhússins sem veitir góða birtu inn í rýmið. 
Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir á votsvæðum. Baðkar er með sturtuaðstöðu og sturtuhengi. handklæðaofn, Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi. Svartur handklæðaofn. Upphengt salerni, hvít skúffuinnrétting undir handlaug, tvöfaldur veggskápur ofan wc. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Herbergi I: Mjög rúgott með útgengi út á stórar morgunsvalir til norðausturs. 
Herbergi II: Ágætlega rúmgott á dýptina. Gluggi í öðrum enda þess sem er í norðaustur, tvöföld gardínustöng.
Herbergi III: Nett er rúmast mjög vel, var upprunalega á teikningu, hefur ýmist verið og ekki verið í gegnum tíðina. Hægt er að taka það niður og sameina stofunni ef ekki er þörf á því. Gluggi út á svalirnar til suðvesturs með hvítri rúllusebra gardínu. 
Geymsla I: Nett snyrtilega geymsla með hillum. Hitastýringarkerfi íbúðar er staðsett þar og greinatafla fyrir rafmagn, en stóra rafmagnstaflan er í kjallara.
Geymsla II: Geymslan er á geymslugangi í kjallara hússins. Hún er utan uppgefinnar fermetratölu og er 6,4 fm að innanmáli og því skráð um 7--8 fm ef væri í uppgefnum fm eignar.
Bílskúr: 20,9 fm bílskúr með nýlegri bílskúrshurð. Rafdrifin hurð. Flísar á gólfi og stálvinnuinnrétting innst í skúrnum. Hilla. Rafmagn, hiti, vatnslanga.
Sameign: Tvö útleiguherbergi í kjallara með sameiginlegum eldhúskrók, gestasalerni og sturtu sem Húsfélagið fær ca 1,2-1,5 m á ári. Stigahús, hjóla og vagnageymsla í kjallara með sérútgangi. tæknirými og gangar í kjallara. Myndavélakerfi tengt stjórnstöð Securitas er við húsið. Útidyrahurð er rafknúin.

     >>SÆKTU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST HÉR<<

     >>SKOÐAÐU OG NJÓTTU EIGNARINNAR BETUR Í ÞRÍVÍÐRI SÝN HÉR<<

Stóragerði er miðsvæðis í Reykjavík og því er stutt að sækja alla þjónustu í nærumhverfi, s.s. Skeifuna, Austurver og Miðbæ á Háaleitisbraut. Skólar og leikskólar eru í nærumhverfi. Húsið stendur nærri helstu akstursstofnæðum, bæði Miklubraut og Bústaðarvegi, svo það eru góðar almenningssamgöngur og stutt leið á þessar stofnæðar höfuðborgarinnar. 

Allar nánari upplýsingar og tímapantanir fyrir skoðun:
Guðbjörg Helga, löggiltur fasteignsali og viðskiptafræðingur s. 897 7712, gudbjorg@remax.is
Gylfi Jens, löggiltur fasteignasali og lögmaður, s. 822 5124, gylfi@remax.is

 
Byggt 1962
20.9 m2
Fasteignanúmer
2033305
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
05
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.110.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Stóragerði 18
108 Reykjavík
106,6 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
413
703 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Stóragerði 8
108 Reykjavík
116,7 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
413
685 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Álftamýri 54
108 Reykjavík
143,3 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
513
544 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Kambasel 28
109 Reykjavík
146 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
312
547 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin