RE/MAX og Stefán Jarl lgf. kynna til leigu: Ný og rúmgóð tveggja herbergja íbúð í vönduðu og fallegu fjölbýli við Áshamar 50, 221 Hafnarfirði. Íbúðunni fylgir merkt stæði og geymsla í lokuðu bílastæðahúsi. Íbúðin leigist með innbyggðum ísskáp, frysti og uppþvottavél.
**Laus til afhendingar strax**
Leiguverð er kr.325.000.- plús rafmagn. Hitakostnaður er innfalin í leiguverði.
3 mánaða leigutrygging - Leiguskjól eða bankaábyrgð.
Umsóknir sendast á tölvupóstinn - stefan@remax.is
Nánari lýsing:
Anddyri: Parket á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Parket á gólfi, gott skápa- og borðpláss, innréttingin er frá Selós, framhliðar eru matt beige, grábrúnar að lit, borðplötur eru úr 20mm Quartz steini með undirlímdum vaski úr stáli. Eldhústæki eru frá AEG. Innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél fylgir. Skúffur eru með mjúklokunarbúnaði, og LED lýsing undir efri skápum. Höldur eru svartar grip höldur frá Selós.
Alrými: Parket á gólfi, útgengt út á svalir.
Hjónaherbergi: 13,9fm, parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Gráar flísar 60x120 að stærð á gólfi og á veggjum að hluta. Borðplötur eru úr 20 mm Quartz steini með undirlímdum vaski. innréttingin er frá Selós, framhliðar eru matt beige og grábrúnar að lit. Upphengt salerni, handklæðaofn og sturta. Hreinlætistæki eru frá Grohe og innihalda hitastýrð og innbyggð blöndunartæki í sturtu. Þvottaaðstaða er inn á baðherberginu, með innréttingu frá Selós undir þvottavél og þurrkara, beige og grábrún að lit. Vélrænt loftræstikerfi er í öllum íbúðum, og loftræstisamstæða er staðsett í efri skáp þvottainnréttingarinnar.
Svalir: 7,5 fm.
Geymsla: 11,6 fm í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla: Í sameign.
Bílastæði: Stæði í lokuðu bílastæðahúsi fylgir eigninni. B35.
Inngarður: Inngarður lóðar er skjólgóður suðurgarður sem þjónar íbúum með leiktækjum, stígum og fjölbreyttum grænum svæðum. Hönnun garðsins leggur áherslu á notagildi og fegurð. Gönguleiðir verða hellulagðar og aðstaða verður fyrir útivist og samveru. Leiktæki fyrir börn verða sett upp í samræmi við samþykkt skipulag og hönnun lóðar.