RE/MAX Ísland logo
Opið hús:24. ágúst kl 17:00-17:30
Skráð 21. ágúst 2026
Söluyfirlit

Hraunbær 40

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
89.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
671.525 kr./m2
Fasteignamat
62.100.000 kr.
Brunabótamat
44.900.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Hera Björk Þórhallsdóttir
Hera Björk Þórhallsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1967
Þvottahús
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2044608
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta og yfirfarið/upprunalegt
Þak
Endurnýjað 2020
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Engar svo vitað sér - sjá yfirlýsingu Húsfélags við skoðun. 
 
** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA **

RE/MAX, HERA BJÖRK Lgf. ( herabjork@remax.is ) & SALVÖR ÞÓRA Lgf. ( salvor@remax.is ) KYNNA : 

Björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð við Hraunbæ 40 í hinun gróna og fjölskylduvæna Árbæjarhverfi. Eign með góða möguleika þar sem endurbætur eru þegar hafnar og því tækifæri til að ljúka endurbótum fyrir þá sem vilja laga heimilið að eigin þörfum og smekk.

Helstu kostir
  • 89,2 m² vel skipulögð 3ja herbergja eign
  • Ný gólfefni í stofu og hún nýlega máluð
  • Endurnýjun baðherbergis hafin
  • Tvö góð svefnherbergi og rúmgóð stofa
  • Svalir, sérgeymsla og sérmerkt bílastæði
  • Tækifæri fyrir laghenta að setja sinn svip á eignina

** SMELLIÐ HÈR fyrir nánari upplýsingar og/eða til að bóka í OPIÐ HÚS  **
** SMELLIÐ HÉR til að sækja SÖLUYFIRLIT og EIGNAMÖPPU samstundis **


Samkvæmt þjóðskrá Íslands er eignin skráð 89,2 m², þar af er íbúðin sjálf 84,0 m² og sérgeymsla 5,2 m². Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og rúmgóða geymslu í kjallara og þvottahús í sameign. Endurbætur hafa verið hafnar á eigninni en þeim hefur ekki verið lokið. Stofa hefur verið endurnýjuð með nýjum gólfefnum og máluð hátt og lágt. Endurnýjun baðherbergis er hafin; búið er að flísaleggja að hluta en eftir er að ljúka flísalögn og koma fyrir walk-in sturtu eða baðkari, vaskaskáp og vaski, lýsingu og öðrum frágangi.
Hurðir vantar á rými íbúðarinnar og gólfefni vantar á eldhús. Eignin býður því upp á gott tækifæri fyrir nýjan eiganda til að ljúka framkvæmdum og velja lokaútfærslu að eigin smekk.
Fyrirhugað fasteignamat fyrir 2026 er: 62.650.000 kr.

** SMELLTU HÉR til að skoða eignina í 3D **

Nánari lýsing
Forstofa / hol: Komið er inn rúmgott hol með rými fyrir fataskáp/hengi/kommóðu.
Stofa / borðstofa: Bjart og rúmgott rými með góðu plássi fyrir bæði setustofu og borðstofu. Ný gólfefni hafa verið lögð og rýmið nýlega málað hátt og lágt. Útgengt er á suðursvalir úr stofu.
Eldhús: Eldri eldhúsinnrétting með góðu skápa- og vinnuplássi. Gólfefni vantar á eldhús og því er frágangi þar ólokið.
Svefnherbergi I: Rúmgott svefnherbergi með rými fyrir fataskáp.
Svefnherbergi II: Gott og bjart svefnherbergi.
Baðherbergi: Endurbætur standa yfir og frágangi er ólokið. Búið er að flísaleggja hluta rýmisins en eftir er m.a. að ljúka flísalögn og koma fyrir walk-in sturtu eða baðkari, vaskaskáp og vaski, lýsingu og öðrum búnaði sem nýr eigandi kýs að setja. 
Geymsla: Sérgeymsla, 5,2 m², er í sameign.
Sameign: Sameiginlegt þvotta- og þurrkherbergi ásamt hjóla- og vagnageymslu.
Bílastæði: Sérmerkt bílastæði fylgir eigninni auk gestabílastæða í sameign.

Ástand eignar og fyrirvari
Eignin er dánarbú og seljandi getur því ekki veitt ítarlegar upplýsingar um ástand eignarinnar, framkvæmdir sem hafnar hafa verið eða stöðu einstakra þátta hennar.
Ástand raflagna, rafbúnaðar og vatnslagna er óþekkt og hefur seljandi ekki látið framkvæma sérstaka úttekt á þeim þáttum.
Það viðhald á ytra byrði sem vitað er um er að 2020 var skipt um þak og 2018 voru gluggar endurnýjaðir með nýjum ál/tré gluggum ásamt því að suðurhlið hússins  var klædd með steni, Duropal sett á svalir og blikk vatnsbretti undir glugga.
Eignin er seld í því ástandi sem hún er við skoðun og kaupendur eru hvattir til að kynna sér ástand hennar vel og vandlega fyrir tilboðsgerð. Jafnframt er kaupendum bent á að leita aðstoðar viðeigandi fagaðila við skoðun eignarinnar telji þeir ástæðu til.

Fjölbýlið Hraunbær 40 var byggt árið er 1967 og er hluti af skemmtilegum og fjölskylduvænum íbúðarkjarna við Hraunbæ, frábærlega staðsett framarlega í Árbæjarhverfi og í þægilegu göngufæri við þær verslanir og þá þjónustu sem Árbærinn hefur upp á að bjóða. Stutt er í alla þjónustu, leikskóla, skóla og verslanir ásamt sundlaug og útivistaparadísina í Elliðarárdalnum. Þarna er skemmtilegt samfélag barna og fullorðinna og góð leiksvæði innan seilngar. Gott aðgengi er að almenningssamgöngum og stutt í stofnbrautir.

Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í þrívíðu umhverfi, ferðast auðveldlega á milli herbergja og kynnt þér rýmið.

Allar nánari upplýsingar um eignina veita:
Hera Björk, löggiltur fasteignasali í 774-1477 / herabjork@remax.is
Salvör Þóra löggiltur fasteignasali í 844-1421 / salvor@remax.is 


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
_________________________________
Ertu í fasteignahugleiðingum?
Við höfum starfað við fasteignasölu samanlagt í yfir 19 ár. 
Við leggjum okkur fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir seljendur og kaupendur. Hjá okkur færðu frítt sölumat og upplýsingar um ferlið án allra skuldbindinga. Hafðu samband í dag!
- Salvör Þóra lgf, í síma 844-1421 eða salvor@remax.is
- Hera Björk, lgf í síma 774-1477 eða herabjork@remax.is

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Víkurás 8
110 Reykjavík
79.5 m2
Fjölbýlishús
211
741 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Víkurás 3
110 Reykjavík
79.4 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
211
729 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Dúfnahólar 2
111 Reykjavík
77.1 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
312
764 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Barmahlíð 41
105 Reykjavík
71.3 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
211
840 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin