Fasteignasalarnir Vernharð Þorleifsson og Magga Gísladóttir kynna fallegt 111,5 fm endaraðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Jökulgrunn 8 í Reykjavík.
Eignin er í raðhúsaþyrpingu fyrir 60 ára og eldri. Virkilega gott skipulag er á eigninni sem er opin og björt með mikilli lofthæð í alrými. Sérafnotareitur út frá stofu er einstaklega skjólsæll.
Góðu og reglulegu viðhaldi hefur verið sinnt af félagi húseigenda við Jökulgrunn á ytra byrði húsa og lóð og er öll aðkoma hin snyrtilegasta.
Eignin getur verið laus við kaupsamning. Frekari upplýsingar veita Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í síma 699-7372 / venni@remax.is og Magga Gísladóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-7494 / magga@remax.isKíktu í heimsókn til okkar á Facebook eða
á InstagramEignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu og borðstofu, svefnherbergi, hol, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands: Íbúð er 85,7 fm og bílskúr er 25,8 fm, samtals 111,5 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp, flísar á gólfi.
Eldhús er með snyrtilegri innréttingu, helluborði, gufugleypi, bakarofni í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél og borðkrók, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengi á skjólsæla verönd og garð sem er lokaður með trjágróðri.
Svefnherbergi er rúmgott með fataskápum, parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með salerni, snyrtilegri baðinnréttingu og sturtu.
Hol er með fataskápum, parket á gólfi.
Þvottahús er á milligangi sem liggur að bílskúr, með tengi fyrir þvottavél, skolvaski og áföstum hillum.
Bílskúr er með góðri lofthæð og millilofti, rafdrifinni bílskúrshurð og flísum á gólfi. Fyrri eignandi lét útbúa lítið herbergi í bílskúrnum sem er upplagt fyrir barnabörnin en er annars auðvelt að fjarlægja.
Innkeyrsla er hellulögð.