** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA **Falleg og góð neðri sérhæð við Melgerði 28 á Kársnesinu!
RE/MAX & SALVÖR ÞÓRA Lgf. & HERA BJÖRK Lgf. & kynna :(
Salvör:
844-1421 /
salvor@remax.is |
Hera Björk:
774-1477 /
herabjork@remax.is)
Fallega, bjarta og vel skipulagða neðri sérhæð með sérinngangi í reisulegu tvíbýlishúsi að Melgerði 28, 200 Kópavogi. Eigninni fylgir fallegur garður, góð heimkeyrsla og notaleg útisvæði bæði framan og aftan við húsið. Staðsetningin er einstaklega góð í rólegri götu í þessu fjölskylduvæna hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, ýmsa þjónustu, útivist og góðar stofnbrautir. SJÓN ER SÖGU RÍKARI!
** Sérinngangur.
** Bjart og rúmgott eldhús með eldunareyju og opnu skipulagi.
** Tvö svefnherbergi og tvær bjartar og samliggjandi stofur, með möguleika á þriðja herberginu.
** Bílahleðslustöð fylgir eigninni.
** Falleg og skjólgóð útisvæði bæði framan og aftan við húsið.
** Núverandi eigendur hafa búið í eigninni í tæp 30 ár og sinnt reglulegu viðhaldi.
** Húsið og íbúðin hafa fengið gott viðhald, m.a. þak endurnýjað og húsið einangrað og klætt að utan.
** Á samþykktum teikningum er gert ráð fyrir bílskúr á lóðinni.
** Frábær staðsetning á Kársnesinu, í um fimm mínútna göngufjarlægð frá nýjum Kársnesskóla og leikskóla.
SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT ásamt öðrum upplýsingum um eignina SAMSTUNDISAllar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veita: Salvör Þóra, lgf., síma 844-1421 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið salvor@remax.is
Hera Björk, lgf. í síma 774-1477 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið herabjork@remax.isNánar um eign: Um er að ræða bjarta og vel skipulagða fjögurra herbergja neðri sérhæð með sérinngangi. Birt flatarmál eignarinnar samkvæmt HMS er samtals 101 fm. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, 2 svefnherbergi, stofu, borðstofu, baðherbergi og þvottahús/geymslu. Úr þvottahúsinu er útgengi í snyrtilegan bakgarð með nettri timburverönd, þvottasnúrum og malarlögðu svæði. Fyrir framan húsið er góð heimkeyrsla, hellulögð og skjólgóð verönd ásamt fallegum og grónum garði.
SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - Með húsgögnumSMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN húsgagnaNánari lýsing:Forstofa:
Sérinngangur. Flísalögð forstofa með innbyggðum hillum og hurð inn í íbúðina.
Eldhús:
Bjart og rúmgott eldhús með ljósri innréttingu frá um 2006, góðu skápa- og vinnuplássi og flísum á milli efri og neðri skápa. Bakaraofn er í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél. Stór eldunareyja er í miðju rýmisins með góðu skúffuplássi, rafmagnsinnstungum og sæti fyrir nokkra. Flísar eru á gólfi og innfelld lýsing að hluta. Góðir gluggar með opnanlegum fögum veita fallega birtu. Eldhúsið hefur verið opnað inn í hol og þaðan er gott flæði inn í önnur rými íbúðarinnar.
Stofa og borðstofa:
Bjartar og fallegar samliggjandi stofur með parketi á gólfi. Möguleiki er á að útbúa þriðja herbergið í hluta rýmisins.
Hjónaherbergi:
Bjart og rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Herbergi:
Gott herbergi með parketi á gólfi. Rýmið er skráð sem geymsla á aðaluppdráttum.
Baðherbergi:
Flísalagt baðherbergi með hvítri innréttingu, sturtu með steyptum botni og glerþili, upphengdu salerni og handklæðaofni. Gluggi með opnanlegu fagi er í rýminu.
Þvottahús/geymsla:
Þvottahús og geymsla eru inn af eldhúsi. Þar eru fataskápar, flísar á gólfi og gluggar á tvo vegu. Úr rýminu er útgengi í bakgarðinn. Hitainntak íbúðarinnar er í rýminu.
Garður og útisvæði:
Gróinn og fallegur garður er fyrir framan húsið ásamt góðri heimkeyrslu og hellulagðri verönd með skjólgirðingu. Lóðinni hefur verið skipt til afnota milli efri og neðri hæðar í samræmi við punktalínur á aðaluppdráttum sem samþykktir voru 11. september 1980 og 22. febrúar 1990 og birtir eru á teikningavef Kópavogsbæjar. Úr þvottahúsi er útgengi í snyrtilegan bakgarð með nettri timburverönd, þvottasnúrum og malarlögðu svæði.
Heimkeyrsla:
Sérnot eru af góðri malbikaðri heimkeyrslu hægra megin við húsið. Við enda hennar er bílskúrsreitur á samþykktum aðalupdrráttum.
Húsið/íbúðin hefur fengið gott viðhald í gegnum árin og farið í nauðsynleg verkefni hverju sinni., en hér að neðan er að finna útlistun á helstu framkvæmdum síðustu ár:
------------------------------------------------------
Melgerði 28 er reisulegt og vel viðhaldið tvíbýli sem stendur á fallegri og gróinni lóð á eftirsóttum stað á Kársnesi í Kópavogi. Núverandi eigendur hafa búið í eigninni í tæp 30 ár og sinnt henni af alúð. Meðal stærri framkvæmda má nefna endurnýjun þaks og einangrun og klæðningu hússins að utan. Við húsið eru fallegur garður, skjólgóð útisvæði, bílahleðslustöð og góð heimkeyrsla, auk þess sem það er bílskúrsreitur á samþykktum aðaluppdráttum. Staðsetningin er einstaklega góð í rólegu og fjölskylduvænu hverfi þar sem aðeins er um fimm mínútna göngufjarlægð í nýjan Kársnesskóla og leikskóla. Stutt er í þjónustu, íþróttir og fallegar göngu- og hjólaleiðir meðfram strandlengjunni. Hér sameinast rólegt fjölskylduhverfi, gott skipulag, hlýlegt yfirbragð, notalegt útisvæði, vel hirt eign og eftirsótt staðsetning á einum vinsælasta stað Kópavogs.
Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í þrívíðu umhverfi, ferðast auðveldlega á milli herbergja og kynnt þér rýmið.Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veita: Salvör Þóra, löggiltur fasteignasali í síma 844-1421 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið salvor@remax.is
Hera Björk, löggiltur fasteignasali í síma 774-1477 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið herabjork@remax.is-----------------------------------------------------------------
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
_________________________________
Ertu í fasteignahugleiðingum?Við höfum starfað við fasteignasölu samanlagt í yfir 19 ár.
Við leggjum okkur fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir seljendur og kaupendur.
Hjá okkur færðu frítt sölumat og upplýsingar um ferlið án allra skuldbindinga. Hafðu samband í dag!-
Salvör Þóra, lgf í síma
844-1421 eða
salvor@remax.is-
Hera Björk, lgf í síma
774-1477 eða
Herabjork@remax.is