RE/MAX, Guðlaug Jóna lgf og Garðar Hólm lgf. kynna:
Nýjar og glæsilegar íbúðir í lyftuhúsi að Selásbraut 98-108 í Árbæ, Reykjavík. Stærðir eru frá 58,3 – 230,3 fm. 25 íbúðir með sérmerktum stæðum á bílaplani. Íbúðirnar skilast fullbúnar, án gólfefna, með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél og með svalalokun (nema þær sem eru á jarðhæð). Gólfhiti er í öllum íbúðum ásamt loftskiptikerfi. Afhending íbúða er í september 2025.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í útivistarperluna við Heiðmörk og Rauðavatn. Einnig er mjög stutt í leik- og grunnskóla, sundlaug og matvörubúð.
Allar nánari upplýsingar veita Guðlaug Jóna lgf. í síma 661-2363 eða gulla@remax.is og Garðar Hólm lgf. í síma 899-8811 eða gardar@remax.is
Íbúð 208 er glæsileg 4ra herbergja íbúð á 2. hæð með sérmerktu stæði á lóð. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin 101,8 fm, þar af er geymsla í kjallara 9,9 fm. Útgengt er á 14,1 fm yfirbyggðar svalir.
Við hönnun hússins er tekið mið af því að lágmarka viðhald. Húsið er einangrað að utan með álklæðningu í tveimur mismunandi litum og gluggar eru úr ál-tré.Til að skoða heimasíðu verkefnisins smellið HÉR.Íbúð: 208
Hæð: 2
Tegund: 4ra herbergja
Stærð: 101,8 m²
Geymsla: 9,9 m²
Svalir: 14,1 m²
Helstu atriði við frágang innandyra:Innréttingar frá Voke III
Borðplötur í eldhúsi eru almennt úr 20 mm þykkum HPL (high pressure laminate) með ljósu yfirborði. Á baðherbergjum eru borðplötur úr hvítum Durastone með samlímdum vaski.
Eldhústæki frá AEG, spanhelluborð, ofn, uppþvottavél, háfur og ísskákpur.
Gólf baðherbergja eru flísalögð með 60 x 60 cm flísum frá Agli Árnasyni.
Hvítar innihurðir eru frá Agli Árnasyni.
Hús er klætt að utan með vandaðri báruálklæðningu frá Málmtækni.
Gluggar og svalahurðir eru úr ál-tré frá Húsasmiðjunni. Allt gler er K gler eða sambærilegt skv. byggingarreglugerð.
Blöndunartæki eru frá Grohe.
Nánari lýsing:Forstofa: Fataskápur upp í loft.
Eldhús: Falleg innrétting með spanhelluborði, innfelldur ísskápur og uppþvottavél, bakaraofn.
Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými með eldhúsi. Opið og bjart rými. Útgengt út á svalir.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðu rými þar sem fataskápar eru upp í loft.
Herbergi II & III: Eru með fataskápum upp í loft.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni, sturta með glerskilrúmi og innrétting undir og við handlaug. Handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, góðir skápar við þvottaaðstöðu.
Svalir: Útgengt er út á 14,1 fm yfirbyggðar svalir þar sem eru gólfsíðir gluggar og rennihurð.
Geymsla: Er í sameign í kjallara 9,9 fm.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara.
Yfirbyggt hjólaskýli er fyrir utan húsið.
**ATH myndirnar eru teknar í sýningaríbúð hússins sem er íbúð 309**Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati þegar það verður lagt á fasteignina.
Allar nánari upplýsingar veita Guðlaug Jóna lgf. í síma 661-2363 eða gulla@remax.is og Garðar Hólm lgf. í síma 899-8811 eða gardar@remax.is