Katrín Eliza Bernhöft löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX kynnir í einkasölu: STRANDASEL 3, 109 REYKJAVÍKFalleg og björt stúdíóíbúð á annarri hæð í fjölbýlishúsi í Seljahverfinu. Eignin er með stóru og björtu alrými þar sem opið er inn í eldhús. Stórir gluggar sem snúa allir í átt að stórum svölum. Íbúðin hefur nýlega verið tekin í gegn, nýlega máluð, nýleg gólfefni. Nýlegur vaskur, salerni og sturta á baðherberginu. Stór sér geymsla í kjallara. Í sameign er hjóla- og vagnageymsla og einnig þvottahús með vélum sem eru samnýttar af íbúum. Stigagangur og sameign er mjög snyrtileg.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 43,3 fm. Íbúðin er skráð 35,5 fm, geymsla í kjallara 7,8 fm og svo fylgja 12,5 fm svalir í séreign. Eignin hefur fastanúmerið 205-4643 og selst ásamt öllu því sem eigninni fylgir og fylgja ber, þar með talið tilheyrandi lóðaréttindum.FYRIR SÖLUYFIRLIT - sendu póst á katrin@remax.is og þú færð það sent fljótlega.SMELLTU HÉR og skoðaðu þessa eign í 3-D- 3D - OPIÐ HÚS ÞEGAR ÞÉR HENTAR
- Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í tölvu, síma eða snjalltæki, ferðast auðveldlega á milli herbergja með því að nota músina, örvatakkana á lyklaborðinu eða fingur og kynnt þér rýmið betur.
- Ekki þarf sérstakt forrit til að skoða eignina í 3D. Ef þú lendir í vandræðum, ekki hika við að hafa samband við mig.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Katrín Eliza Bernhöft löggiltur fasteignasali, s.699 6617, katrin@remax.isNánari lýsing:Frá stigagangi er gengið inn í andyri með fataskáp og flísum á gólfi. Stofa og borðstofa með stórum gluggum og opið rými inn í eldhúsið. Frá þessu rými er útgengt á stórar svalir. Íbúðin hefur nýlega verið tekin í gegn. Þá var eignin öll máluð og skipt um öll gólfefni. Nýlegur vaskur, salerni og sturta á baðherberginu.
Íbúðin er að mestu parketlögð, en andyrið, eldhúsið og baðherbergið eru flísalögð. Í eldhúsi er AEG bakaraofn og nýlegt tvöföld span borðhellahella
. Eldhúsinnréttingin hefur nýlega verið filmuð. Í sameign er sameiginlegt þvottahús með vélum sem eru samnýttar af íbúum. Sér geymsla er í sameign og einnig sameiginleg hjólag- og vagnageymsla. Sameignin er mjög snyrtileg.
Stutt í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, heilsugæslu, matvöruverslanir, almenningssamgöngur o.fl.
Allar nánari upplýsingar veitir:- Katrín Eliza Bernhöft löggiltur fasteignasali, s.699 6617, katrin@remax.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af löggiltum fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Starfsmanni fasteignasölunnar hefur ekki verið bent á aðra galla á eigninni en fram koma í söluyfirliti þessu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: · Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunnar.