RE/MAX Ísland logo
Skráð 24. sept. 2026
Söluyfirlit

Elsugata 3

RaðhúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
129 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
73.500.000 kr.
Fermetraverð
569.767 kr./m2
Fasteignamat
72.150.000 kr.
Brunabótamat
73.800.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Pétur Ásgeirsson
Pétur Ásgeirsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2024
Þvottahús
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2530894
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
upprunalegt
Raflagnir
upprunalegt
Frárennslislagnir
upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hiti í gólfum
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir : Einkar fallegt miðju raðhús með bílskúr á einni hæð með sérafnotareit við Elsugötu 3 í nýju hverfi í Þorlákshöfn. 
Eignin er 129 fm þar af er bílskúr 25,9 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands.
Íbúðin samanstendur af þremur svefnherbergjum, forstofu, stofu, borðstofu, eldhúsi, þvottahúsi og baðherbergi. 

Húsið er byggt 2024 og er byggt úr timbri á steyptri plötu og klætt að utan með lituðu járni. Þak er klætt með lituðu járni. 
Fasteignamat 2027 fer í 72.800.000.

- Mjög falleg eign.
-Stór svefnherbergi.
-Stórt alrými.
-Innangengt inn í bílskúr.
-Sér afnotaflötur.
-Hægt að setja heitan pott.


Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi og fataskáp.
Eldhús: Er með fallegri innréttingu með miklu skápa og borð plássi , eyja með góðum skúffum og borðplötu sem nær út fyrir innréttinguna að hluta sem hægt er að sitja við, innbyggður ísskápur, uppþvottavél, bakarofn í vinnuhæð, spanhelluborð, parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Parket á gólfi, er mjög rúmgóð með útgengi út í garð til norðurs.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og stórum fataskáp.
Svefnherbergi 2: Rúmgott með fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Rúmgott með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta af veggjum. Falleg innrétting ljósaspegill, upphengt salerni, walk in sturta.
Þvottahús: Flísar á gólfi og með fallegri innréttingu og miklu skápaplássi, skolvaskur og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Útgengi út í garð til austurs.
Bílskúr: Er mjög rúmgóður, stærð 25,9 fm. 

Búið að setja mulning í planið og steypt ruslatunnuskýli á framanverðu. 
Frábær staðsetning í nýju hverfi Þorlákshafnar þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla, íþróttaaðstöðu og falleg útivistarsvæði.  

Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson  löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
Byggt 2024
25.9 m2
Fasteignanúmer
2530894
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
05
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
10.950.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin