RE/MAX kynnir með stolti: Hafnarbraut 18. Vandaðar og glæsilegar íbúðir í nýju og fallegu fjölbýlishúsi við sjávarsíðuna á Kársnesi, 200 Kópavogi.⭐️ Fjölbreyttar stærðir og gerðir frá 48 til 194 fm. Stæði í bílageymslu fylgir flestum íbúðum.
⭐️ Íbúðirnar skilast fullbúnar með parketi. Sérsmíðaðar innréttingar frá Brúnás. Vönduð eldhústæki og sjálfstætt loftskiptikerfi. Aukin lofthæð, 270-290 cm.
Íbúð 502: Stórglæsileg fjögurra herbergja, 166,8 m2 útsýnisíbúð á efstu hæð með 45,3 m2 þaksvölum með vandaðri Bambus klæðningu á svalagólfi og gert ráð fyrir heitum potti á svölum. Hjónasvíta með fataherbergi og sér baðherbergi, 290 cm lofthæð, gólfhiti og stórir gólfsíðir gluggar.
⭐️
Kynningarvefur hússins ⭐️
Bókið skoðun, sýnum alla daga Þorsteinn Yngvason, Lögmaður/löggiltur fasteignasali, í síma 696-0226 / thorsteinn@remax.is
Guðmundur Þór Júlíusson, Löggiltur fasteignasali, í síma 858-7410 / gj@remax.isElvar Frímann Frímannsson, Löggiltur fasteignasali, í síma 659-6606 / elvar@remax.isEnding og gæði voru höfð að leiðarljósi við allt efnisval og frágang hússins. Hér eru helstu kostir við frágang:✅ Sjálfstætt loftskiptikerfi í öllum íbúðum
✅ Sérsmíðaðar innréttingar, framleiddar og uppsettar af Brúnaás.
✅ Ítalskar kvarts borðplötur á eldhúsum og baðherbergjum
✅ Aukin lofthæð í öllum íbúðum, 270 – 290 cm
✅ Innbyggður kæliskápur og uppþvottavél. Hreinlætistæki frá Grohe
✅ Vönduð og falleg álklæðning sem veðurkápa
✅ Sér þvottahús í flestum íbúðum
✅ Svalagólf og sérafnotareitir skilast með viðhaldsléttu Bambus pallaefni
✅ Vönduð svalalokun/skýli í völdum íbúðum
Húsið: Hafnarbraut 18 er vandað og einstaklega vel staðsett fjölbýlishús við sjávarsíðuna á vestanverðu Kársnesinu í námunda við fyrirhugaða Fossvogsbrú sem mun, ásamt Borgarlínustöð, skapa sterka tengingu við Öskjuhlíð, háskólasvæðin, Reykjavíkurflugvöll og miðborg Reykjavíkur. Húsbyggingin er fimm hæðir á niðurgröfnum kjallara þar sem eru bílastæði, sérgeymslur, sameiginlegar reiðhjóla- og vagnageymslur og tæknirými. Á íbúðahæðunum fyrir ofan eru 52 fjölbreyttar íbúðir af mismunandi gerð, stærð og herbergjafjölda. Byggingin er hönnuð fyrir fjölbreyttan markhóp íbúa, allt frá sérhönnuðum stúdíóíbúðum til rúmgóðra fjölskylduíbúða. Byggingaraðili/aðalverktaki er Brúarbyggð ehf.
⭐️
Skilalýsing og tækjalisti seljanda ⭐️
Hönnun:Arkitektar og aðalhönnuðir eru Skala: arkitektar
Burðarþolshönnun: Verkfræðistofan Víðsjá
Lagna- og loftræstihönnun: Verkfræðistofan Víðsjá
Raflagnahönnun: Sturla Snorrason
Hljóðvistarhönnun: Myrra hljóðstofa
Eldvarnahönnun: ÖRUGG verkfræðistofa
Landslagshönnun og innanhússhönnun: Skala: arkitektar
Umhverfið: Hverfið er rólegt og gróið og býr yfir miklum náttúrutöfrum. Skólar eru í næsta nágrenni og í göngu fjarlægð er bæði Sky lagoon og sundlaug Kópavogs. Þá eru nærri verslanir, heilbrigðisþjónusta að ógleymdum menningarperlum Kópavogs, Gerðasafni, Salnum og Kópavogskirkju sem er eitt af kennileitum bæjarins. Stutt er í matvöruverslanir og alla helstu þjónustu. Kársnesið er með fjölda göngu- og hjólastíga sem tengist hvort sem er til Reykjavíkur eða inn í Kópavoginn. Einstök staðsetning fyrir þá sem elska að horfa út á hafið og njóta þess að vera með bát í höfn.
Skipulagsgjald: Kaupendur greiða álagt skipilagsgjald við endanlega útgáfu brunabótamats sem nemur 0,3% af heildarmati.