Mjög falleg íbúð á tveimur hæðum með sér inngangi, þremur svefnherbergjum, tveimur baðerbergjum og björtum stofum. Rúmgott afmarkað rými í bílakjallara. Upplýsingar gefur Óskar Bergsson, löggiltur fasteignasali í síma 893 2499 og oskar@remax.is Lýsing: Forstofa er flísalögð með opnum skáp. Á fyrstu hæð eru samliggjandi stofur, eldhús, þvottahús og baðherbergi með sturtu. Úr stofu er gengið út á vestur svalir. Eldhúsið er bjart með tveimur opnalegum gluggum, rúmgóðum borðkróki og hvítum innréttingum. Á annarri hæð eru þrjú svefnherbergi undir súð og baðherbergi með baðkari. Þriðja hæðin er síðan alveg undir súð með glugga á gafli sem hægt er að nýta sem svefnherbergi ásamt geymslu. Lóðin er sameiginleg og snyrtileg. Húsið er í grónu rólegu hverfi mjög miðsvæðis í Ártúnsholti þar sem er stutt í skóla- og leikskóla, góðar almenningssamgöngur og aðra þjónustu á Höfðanum. Húsinu er vel við haldið og var þak, útveggir og gluggar málaðir 2022. Gert við svalir 2019. Bílakjallari málaður 2021. Útitröppur steyptar 2023 og skipt um útsogsviftu. Íbúðin er 115 fermetrar og afmarkað rými í bílageymslu er 30 fermetrar. Nánari upplýsingar gefur Óskar Bergsson, löggiltur fasteignasali í síma 893 2499 og oskar@remax.is