RE/MAX Ísland logo
Skráð 16. nóv. 2026
Söluyfirlit

Glitvangur 15

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
296.7 m2
10 Herb.
7 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
209.900.000 kr.
Fermetraverð
707.449 kr./m2
Fasteignamat
182.750.000 kr.
Brunabótamat
149.750.000 kr.
Byggt 1987
Þvottahús
Garður
Margir inngangar
Fasteignanúmer
2074955
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
ekki vitað
Raflagnir
ekki vitað
Frárennslislagnir
ekki vitað
Gluggar / Gler
ekki vitað
Þak
ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
já
Upphitun
Hitaveita/Gólfhiti/ofnakerfi
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Erling Proppé lgf. & REMAX kynna talsvert endurnýjað 296,7 fm einbýlishús (Kjartanshús) á tveimur hæðum  með innbyggðum bílskúr, 3 herb. aukaíbúð, möguleika á annarri minni aukaíbúð við Glitvang 15 í Hafnarfirði.

Eignin skiptist þannig að aðalhæðin er 149,4 fm og neðri hæðin 147,3 fm, þar af 35 fm bílskúr samtals 296,7 fm skv. Þjóðskrá Íslands.

Á neðri hæðinni er innangengt í bílskúr, herbergi með sér baðherbergi og stór 3 herb. aukaíbúð með sérinngangi. 

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar:
Erling Proppé.lgf   // s. 690-1300 // erling@remax.is 


Aðalhæð (efri hæð)
Rúmgóð forstofa. Flísar á gólfi, gólfhiti.
Gestasalerni, innfelld dökk Volablöndunartæki, veggsalerni. Flísar á gólfi og veggjum, gólfhiti.
Borðstofa og stofa eru björt og rúmgóð rými, arinn með nýlegu gleri (lokun), sjónvarpshol með sérsmíðuðum sjónvarpsskenk, útgengt á hornsvalir. 
Eldhús með sérsmíðaðri dökkmattri innréttingu, tvöfaldur ísskápur fylgir, tveir ofnar í vinnuhæð, helluborð, innbyggð uppþvottavél, borðkrókur.
Þvottahús er innaf eldhúsinu, opnanlegur gluggi og útgengt á lóð. Þvottahúsið er flísalagt, gólfhiti. 
Herbergisgangur, harðparket á gólfi. 
Fjögur svefnherbergi eru á hæðinni en opið er á milli tveggja barnaherbergja (auðvelt að loka aftur). Skápar eru í þremur herbergjum og harðparket á gólfi.
Baðherbergið er með sérsmíðuðum vask úr akrílstein með tveimur blöndunartækjum, sérsmíðuð dökkmött innrétting, veggsalerni, rúmgóð flísalögð sturta með dökku gleri, frístandandi baðkar, sérsmíðaður stór spegill, öll blöndunartækin eru dökk frá Vola. Flísar á gólfi og veggjum, gólfhiti. 
Stigi niður á neðri hæð er úr forstofu.

Neðri hæð
Komið er niður í flísalagt hol með gólfhita.
Í dag er innangengt í bílskúr og í herbergi með sér baðherbergi úr holi. Auðvelt er að skipta upp holinu og útbúa aðra minni aukaíbúð með sérinngangi. 

Aukaíbúð: 
3 herb. íbúð með sérinngangi.
Skiptist þannig: Forstofa. Rúmgott eldhús með dökkri innréttingu, ofn og helluborð, stæði fyrir uppþvottavél og stæði fyrir þvottavél, góður borðkrókur. Baðherbergi með flísalagðri sturtu, veggsalerni og handklæðaofn. Rúmgóð stofa/borðstofa,  tvö svefnherbergi.. Flísar eru á öllum rýmunum og gólfhiti þar allsstaðar. Sér gólfhitakerfi er fyrir íbúðina. 

Bílskúrinn
Innangengt er í bílskúrinn úr holi neðri hæðar og er hann allur flísalagður, vaskur, heitt og kalt vatn, rafmagnsopnari á bílskúrshurð og gönguhurð.

Lóðin
Á suðvesturhorni er glæsileg og stór skjólrík verönd, þar er að finna grillskýli, saunu og kaldan pott. 
Bílaplan er stórt og hellulagt. 

Húsið hefur verið talsvert endurnýjað undanfarin ár: 
** Klóaklagnir voru myndaðar fyrir 4-5 árum og eru úr plasti alveg út í götu.
** Að utan voru settar drenlagnir við húsið að hluta og nýr dælu- og klóaksbrunnur.
** Járn og pappi á þaki endurnýjað.
** Þakkantur endurnýjaður.
** Gardínur frá Álnabæ eru í öllu húsinu sem fylgja
** Flest ljós og ljósabrautir fylgja
** Öll gólfefni endurnýjuð.
** Flestar hurðir endurnýjaðar.
** Settur gólfhiti á flesta staði hússins þar sem eru flísar. (Ekki í bílskúr og baðherbergi stúdíóíbúðar)
** Allar innréttingar og tæki endurnýjuð.
** Öll blöndunartæki og baðherbergi endurnýjuð.

ath. Innra skipulag eignarinnar er ekki skv. upprunalegum teikningum hússins. 

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar:
Erling Proppé.lgf   // s. 690-1300 // erling@remax.is 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Víðivangur 6
220 Hafnarfjörður
302,5 m2
Einbýlishús á tveimur hæðum
834
661 þ.kr./m2
199.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Skógarás 7
221 Hafnarfjörður
294,8 m2
Einbýlishús með aukaíbúð
825
641 þ.kr./m2
189.000.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin