RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynnir í einkasölu: Glæsileg tveggja herbergja 91,4 fm. íbúð á 1. hæð með skjólgóðri verönd og mjög fallegu útsýni til sjávar og fjalla við Naustavör 10 Kópavogi. Vel staðsett bílastæði í lokaðri bílgeymslu fylgir og rúmgóð sérgeymsla í sameign. Frágangur lóðar mjög snyrtilegur með fallegum gróðri, stéttum með snjóbræðslu og kvöldlýsingu. Myndavélasími er í húsinu. Húsið er byggt af BYGG og tekið í notkun 2016. Íbúðin sjálf er 82,4 fm. og skiptist í forstofu, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús og rúmgóða stofu með útgengt út á stóran viðarsólpall til vesturs/norðurs.
Falleg og björt eign við sjávarsíðuna með einstöku útsýni. Stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir, góðar samgöngur ásamt fallegum göngu og hjólaleiðum. Eign sem vert er að skoða.KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉRNánari lýsing:Forstofa er með flísum á gólfi og góðum skápum.
Stofa og borðstofa er rúmgóð og björt með harðparketi á gólfi. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengt er út á stóra viðarverönd.
Viðarverönd er er um 22 fermetrar að stærð.
Glæsilegs útsýnis nýtur til norðurs út á Fossvoginn, Öskjuhlíðina, Perlunni, smábátahöfninni og víðar. Rafmagnstenglar og kvöldlýsing við verönd. Eldhús er með flísum á gólfi og fallegri sprautulakkaðri og hvíttaðri eikar eldhúsinnréttingu frá Brúnás. Lýsing undir skápum. AEG stál bakaraofn og helluborði ásmat örbylgjuofni,stál gufugleypir og innbyggðri uppþvottavél. Flísar á milli skápa.
Svefnherbergi er með harðparketi á gólfi og
fataherbergi með innréttingu frá Brúnás.
Baðherbergi er flísalagt í gólf og veggi, rúmgóð flísalögð sturta með glerþili, upphengt salerni, falleg innrétting við vask með speglaskáp ásamt handklæðaofni.
Þvottahús er innan íbúðar með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél/þurrkara, vinnuborð með vaski og útloftun.
Sérgeymsla íbúðar er staðsett í sameign um 9,0 fm. að stærð.
Bílastæði íbúðar er staðsett í upphitaðri bílageymslu merkt 02B13. Búið er að leggja fyrir hleðslu fyrir rafbíla.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali í síma 867-1231 og gudrunlilja@remax.is.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.500 kr. af hverju skjali. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk