Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynnir: Sérlega björt og falleg 3ja herbergja íbúð á 4.hæð í fallegu og vönduðu fjölbýlishúsi með lyftu og stæði í lokaðri bílageymslu. Í eigninni eru tvö góð svefnherbergi, fallegt bjart alrými og sér þvottaherbergi. Baðherbergi er rúmgott með sturtu beint á gólf með glerskilrúmi. Eignin er á næst efstu hæð í fimm hæða fjölbýli miðsvæðis í Urriðaholtinu í Garðabæ.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
Nánari lýsing eignar:Komið er inn í anddyri með mynd dyrasímakerfi á jarðhæð. lyfta gengur beint upp að íbúðinni og niður í bílakjallarann.
Forstofa: Komið er inn í forstofu með fallegu harðparketi á gólfi og góðum fataskápum sem ná upp í loft.
Stofa: Á móti forstofunni er rúmgóð og björt setustofa með vönduðu harðparketi á gólfi. Útgengt er á góðar suður svalir.
Borðstofa: Hægra megin inn af stofunni er borðstofa sem er í sama rými og eldhúsið. Stór suður gluggi er í rýminu.
Eldhús: Hvít innrétting með efri og neðri skápum og dökkri borðplötu er á einn vegg. Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð og fylgja með í kaupum.
Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er rúmgott með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum sem ná upp í loft sem ná veggja á milli.
Baðherbergi :Baðherbergið er með fallegum gráum flísum á gólfi og á veggjum hjá votrýmum. Falleg og vönuð innrétting er undir vaski og speglaskápar eru á vegg fyrir ofan vask. Sturta með góðu aðgengi er beint á gólf með gler skilrúmi. Á móti sturtu er handklæðaofn á vegg.
Barnaherbergi: Barnaherbergi er með harðparketi á gólfi og góðum fataskáp sem nær upp í loft.
Þvottaherbergi: Sér þvottaherbergi er innan íbúðar með með vinnuborði og hillum. Flísar á gólfi.
Geymsla : Í sameign er góð sér geymsla sem fylgir íbúðinni.
Bílakjallari: Á neðstu hæð er snyrtilegur bílakjallari. Sérmerkt stæði fylgir íbúðinni með öllum tengingum til að setja hleðslustöð.
Sameign: í sameign er hjóla og vagnageymsla.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is