RE/MAX og Oddur fasteignasali kynna í einkasölu: Glæsileg fjögurra herbergja efri hæð með hellulögðum 67,6 fm sólpalli í tvíbýli í Reykjanesbæ. Hæðin er skráð 97,6fm þar af geymsla á jarðhæð 4,6fm.
Allar nánari upplýsingar veitir Oddur í síma 782-9282 eða á oddur@remax.isSmelltu hér til að skoða eignina í 3-DNánari lýsing:Forstofa: flísar á gólfi og fataskápur. Útgengt á stórar þaksvalir með góðri skjólgirðingu og heitum potti sem getur fylgt.
Eldhús: flísar á gólfi, sérsmíðuð innrétting frá HTH og granít á borðum.
Stofa / borðstofa: er björt og opin með flísum á gólfi.
Hjónaherbergi: flísar á gólfi og fataskápur.
Barnaherbergin: eru tvö með flísum á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi: flísar á gólfi og veggjum að hluta. Upphengt salerni og rúmgóð walk-in sturta. Opnanlegt fag á baði.
Íbúðin er öll afar stílhrein og snyrtileg, gólfhiti er í húsinu og AEG heimilistæki ásamt LED lýsingu innan- og utandyra. Bílaplan er hellulagt með hitalögn í gönguleið ásamt upplýstum blómakerjum og náttúrustein.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk