RE/MAX og Sigríður Guðnadóttir löggiltur fasteignsali kynna: Einstaklega falleg og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á jarðhæð ásamt bílskúr sem var breytt í íbúð fyrir 4-5 árum. Stór afgirt verönd og garður. Geymsluskúr á lóð og 2 stæði fylgja eigninni. Skv. seljanda var dren endurnýjað fyrir um 2 árum auk þess sem þak var málað og yfirfarið fyrir 2-3 árum.
***Skoða aðalíbúð í 3D hér***
*** Skoða aukaíbúð i 3D hér***Nánari lýsing aðalíbúð:
Forstofa / hol með flísum á gólfi.
Stofa er rúmgóð með parket á gólfi.
Eldhús með fallegri hvítri innréttingu, uppþvottavél, flísalagt milli skápa og físar á gólfi, gott skápapláss.
Baðherbergi er flíslagt með sturtu, nýlegu upphengdu wc, handklæðaofn, fallegri innréttingu og t.f. þvottvél og þurrkara.
Hjónaherbergi er rúmgott með parket á gólfi og fataskápum.
Tvö góð barnaherbergi með parket á gólfi og opinn fataskápur í öðru þeirra (var áður eitt herbergi).
Sér afgirt verönd og garður. Aukaíbúð: Skiptist í
stofu, eldhúskrók, baðherbergi með opnanlegum glugga,
anddyri og svefnloft.Flísar á gólfi í anddyri og eldhúsi en parket á stofu. Gott
geymslurými undir tröppum upp á svefnloft.
Nánari upplýsingar gefur Sigríður lgf. í síma 663 3219 eða sigga@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.