RE/MAX og Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali kynna Dalsbraut 15 íbúð 0205 - fnr. 251-3206 í Innri Njarðvík í Reykjanesbæ.Íbúðin er á efri hæð í tveggja hæða fjölbýlishúsi í Innri Njarðvík í Reykjanesbæ. Húsið er byggt árið 2019 og er birt stærð samkv. Þjóðskrá 87,1 fm og þar af íbúðarhluti 80,9 fm og geymsla 6,2 fm. Komið er inn í anddyri og á vinstri hönd er eldhús og á hægri hönd er barnaherbergi og svo þar við hlðina baðherbergi og svo hjónaherbergi. Stofa og borðstofa liggja að eldhúsi og úr stofunni er útgengt á stórar yfirbyggðar svalir. Gólfihiti er í íbúðinni. Stýrikerfi fyrir lýsingu í íbúðinni hefur verið sett upp og er hægt að velja margar stillingar á skjá sem er i stofunni.
FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.Nánari lýsing:Forstofa: Flísar á gólfi. Rúmgóður hvítur fataskápur.
Svefnherbergi: Eru tvö og er parket á gólfum þeirra beggja. Hvítur fataskápur er í hjónaherbergi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Inngöngusturta með glerþili. Innrétting með handlaug. Upphengt salerni. Innrétting undir þvottavél í vinnuhæð.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfi. Útgengt á stórar yfirbyggðar svalir til vesturs.
Eldhús: Parket á gólfi. Góð innrétting með helluborði og viftu yfir. Bakstursofn í vinnuhæð.
Svalir: Stórar lokaðar svalir sem eru um 20 fm og eru ekki inni í heildarfermetrafjölda fjölda eignarinnar. Svalir snúa til vesturs og er útsýni til sjávar. Rými sem getur nýst mjög vel.
Geymsla: Lokuð geymsla á jarðhæð sem er skráð 6,2 fm. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er á jarðhæð.
Lóð: Sameiginleg frágengin lóð.
Bílastæði: Merkt bílastæði er fyrir framan húsið með rafhleðslustöð sem tengd er við rafmagnstöflu íbúðar.
Íbúðin er staðsett á í Innri-Njarðvík og er Stapaskóli stutt frá íbúðinni. Stutt er í þjónustu á Fitjar s.s. matvöruverslanir. Stutt keyrsla út á Reykjanesbraut.
Allar nánari upplýsingar veita
Dagbjartur Willardsson lgf. í síma
861-7507 eða
daddi@remax.is- Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. -Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.