RE/MAX Ísland logo
Skráð 23. feb. 2026
Söluyfirlit

Ljósheimar 4

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
108.4 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
644.834 kr./m2
Fasteignamat
78.450.000 kr.
Brunabótamat
56.800.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1958
Þvottahús
Lyfta
Garður
Útsýni
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2022068
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
5
Hæðir í húsi
9
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
4
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Endurnýjað að hluta
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
já, tvennar svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega falleg og björt 3-4 herbergja 108,4 fm. íbúð á 5. hæð í góðu lyftuhúsi við Ljósheima 4, Reykjavík.  Íbúðin er skráð 102,6 fm. og skiptist í forstofu, eldhús, rúmgóða borðstofu og stofu, tvennar svalir, tvö svefnherbergi og baðherbergi.  Sérgeymsla 5,8 fm. er staðsett í sameign.  Gott húsfélag og virkt samstarf.
Íbúðin er laus við kaupsamning / eftir samkomulagi. 

Falleg og fjölskylduvæn eign á eftirsóttum stað miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, heilsugæslu, skóla og verslanir. Jafnframt eru fallegar göngu- og hjólaleiðir í Laugardalnum. Þetta er vel staðsett eign, björt og með fallegu útsýni.

KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR 

FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja í síma 867-1231 eða með tölvupósti gudrunlilja@remax.is

 
Nánari lýsing: 
Góð aðkoma er að húsinu, hitalögn er í stétt fyrir framan.  Húsið er klætt að utan, sameign snyrtileg og nýleg lyfta. 
Forstofa er með fataskáp, parket á gólfum.  Rúmgott forstofuhol sem tengir saman helstu vistarverur. Nýleg brunavarnarhurð er inn í íbúð.
Eldhús er með eldri innréttingu og góðum borðkrók.  Stór og bjartur opnanlegur gluggi, korkur á gólfum. 
Borðstofa og stofa er í einstaklega björtu og rúmgóðu rými, parket á gólfum. Úr stofu er útgengt út á svalir til vesturs um 7,3 fm.  Mjög fallegt útsýni er úr alrými og stofu.
Svefnherbergin eru tvö. Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með fataskápum, parket á gólfum. Úr hjónaherbergi er gengið út á 3,9 fm. svalir til austurs.  Barnaherbergið er bjart með gluggum til vesturs, fataskáp og parket á gólfum.  Á svefnherbergisgangi eru góðir fataskápar. 
Möguleiki er að útbúa þriðja svefnherbergið (skv. eldri teikningum) með því að setja upp vegg í stofu.
Baðherbergi var endurnýjað 2024.  Skipt var um frárennslis- og vatnslagnir, sett ný vaskinnrétting, salerni, gólfdúkur og hurð. Sturtuklefi er nýlegur.  Góður opnanlegur gluggi er á baðherberginu og tengi fyrir þvottavél.
Sérgeymsla íbúðar 5,8 fm. er staðsett í sameign ásamt hjóla- og vagnageymslu með góðu aðgengi að utan.
Þvottahús er sameiginlegt, staðsett í sameign með þvottavél og þurrkara fyrir íbúa í eigu húsfélags. Stórt þurrkherbergi er fyrir innan.  
Bílastæði eru sameiginleg á lóð, nokkur bílastæði eru einnig við enda sunnanmegin þar sem hverfishleðsla er á vegum ON.  
Garður er einnig sameignlegur, stór og gróinn.

Viðhald og endurbætur síðustu ára: 
2024 var skipt um skólp og vatnslagnir vinstra megin í stigaganginum, þar með talið í þessari íbúð. Skipt var einnig um gler að hluta í sameign og gluggar málaðir.
2004-2005 voru framkvæmdir á skólpi, frárennsli og dren. Einnig var skipt um rafmagnstöflu í sameign.
1998-2000 var húsið klætt að utan og farið í þakviðgerðir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.   2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.  3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.   4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Langholtsvegur 184
104 Reykjavík
96.9 m2
Fjölbýlishús
412
721 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Kristnibraut 97
113 Reykjavík
85.8 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
815 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Hrísrimi 3
112 Reykjavík
104.9 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
312
695 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Opið hús:03. ágúst kl 15:00-15:30
Image
Opna eign
Fífusel 18
109 Reykjavík
103.9 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
413
671 þ.kr./m2
69.700.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin