RE/MAX Ísland logo
Opið hús:10. ágúst kl 14:00-14:30
Skráð 4. ágúst 2025
Söluyfirlit

Hólmgarður 33

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
146.8 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
121.900.000 kr.
Fermetraverð
830.381 kr./m2
Fasteignamat
93.150.000 kr.
Brunabótamat
76.000.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1952
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2035284
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað
Frárennslislagnir
Endurnýjað að mestu/lagfært
Gluggar / Gler
Nýlegt að hluta
Þak
Nýlegt
Svalir
Suðursvalir
Upphitun
Hitaveita/gólfhiti að hluta
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Guðrún Lilja og Þórhallur Viðarsson löggiltir fasteignasalar á RE/MAX kynna í einkasölu: Einstaklega falleg og vel skipulögð 146,8 fm. íbúð á tveimur hæðum við Hólmgarð 33, 108 Reykjavík.  Eignin er töluvert endurnýjuð - 5 svefnherbergi - 2 baðherbergi - sérinngangur - björt og með fallegu útsýni - frábær staðsetning. 

KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Nánari lýsing:


Miðhæðin skiptist í rúmgóða forstofu, fimm svefnherbergi, baðherbergi og gang. Svefnherbergin eru björt og hlýleg með parketi á gólfum. Í hjónaherberginu er viðarveggklæðning ásamt opnum fataskápum. Baðherbergið er með dökkum flísum á gólfum og vegg að hluta, hvítum innréttingum með góðum hirslum og baðkari með sturtuaðstöðu. Gólfhiti er á baðherbergi.

Á stigagangi milli hæða, sem er sér, er fataskápur, nýlegt teppi (African spirit) og fallegt ljóst mahoni handrið. Á jarðhæð er sameiginlegt þvottahús ásamt geymslurými (ekki inn í fermetratölu).

Efri hæð er einstaklega björt með stórum gluggum og fallegri lofthæð undir súð (ath. gólfflötur er því töluvert stærri en uppgefnir fm.). Vel hannað alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu sem nýtir rýmið vel. Eldhúsið er opið og bjart með fallegu útsýni.  Innréttingar frá HTH í ljósum viðarlit og grá borðplata. Innfelldur ísskápur, frystir og uppþvottavél.  Vönduð eldhústæki frá Ormsson, ofnar í vinnuhæð. Innfelld lýsing í lofti og nútímaleg hönnun. Úr borðstofu er útgengt út á svalir til suðurs með fallegu útsýni.  Á efri hæð er jafnframt baðherbergi með fallegum innréttingum, þakgluggar og flísar á gólfi.  Lítil geymsla er þar fyrir innan.

Framkvæmdir og endurbætur síðustu ára samkvæmt seljanda:
2020: Framkvæmdir á efri hæð íbúðarinnar þar sem algjör endurnýjun átti sér stað, þak var hækkað og gerðir kvistir. Skipulagi neðri hæðar breytt í kjölfarið. Steyptur stigi upp á aðra hæð íbúðarinnar. Eldhús endurnýjað með innréttingu frá HTH og tækjum frá AEG.  Nýtt baðherbergi, innrétting frá HTH.  Efri hæð flísalögð með vönduðum 60x60 flísum. African spirit teppi sett á stigagang. Lýsingarhönnuður fengin til að standsetja lýsingu efri hæðar. Nýjar vatnslagnir voru lagðar á efri hæðinni. Vatnslagnir endurnýjaðar í wc á neðri hæð (gert er ráð fyrir nýjum vatnslögnum í bað og vask þegar það verður gert upp næst).  Ný rafmagnstafla tengd fyrir efri hæð.
2017-2018: Byggður 9,0 fm. geymsluskúr úr timbri á baklóð sem tilheyrir íbúðinni. (ath þar óskráðir fm.). Húsið einangrað og klætt á vesturhlið (og austurhlið sem tilheyrir Hólmgarði 35) með víroc plötum. Dren og frárennsli endurnýjað, tekið út fyrir húsið og tengt út í brunn.  Skólp/frárennsli innanhúss var lagfært. 
2013: Skipt um ofna og einangrað bakvið þá. Nýtt rafmagn dregið í íbúðina og rafmagnstafla íbúðar endurnýjuð. Nýir tenglar og rofar. Skipt um öll gólfefni.  Baðherbergi á neðri hæð endurnýjað og settur gólfhiti.

Garður er sameiginlegur, stór og gróinn.  Bílastæði jafnframt sameiginleg í götu fyrir framan hús.  Á lóð fyrir aftan hús er nýlegur 9,0 fm. geymsluskúr íbúðar, ekki inn í uppgefnum fm.

Umhverfið: Hólmgarður er í eftirsóttu og rólegu hverfi í 108 Reykjavík með stuttum göngum til leikskóla, grunnskóla og almennrar þjónustu. Umhverfið er einstaklega fjölskylduvænt og með góðu útivistarsvæði í nágrenni.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.   2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.  3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.   4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Kolagata 1
101 Reykjavík
124.9 m2
Fjölbýlishús með lyftu
423
1032 þ.kr./m2
128.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Laugavegur 96
101 Reykjavík
145.9 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
212
753 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Hallgerðargata 1A
105 Reykjavík
129.1 m2
Fjölbýlishús með lyftu
413
991 þ.kr./m2
127.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Dugguvogur 1 - Íbúð 506
104 Reykjavík
141.9 m2
Fjölbýlishús með lyftu
514
803 þ.kr./m2
113.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2025 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin