Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:
Vandað og vel skipulagt 508,0 fm. einbýlishús við Skeljatanga 9, 102 Reykjavík.
Húsið stendur á einstaklega vel staðsettri 1258,0 fm. sjávarlóð innst í rólegri botnlangagötu þar sem náttúran nýtur sín og óhindrað sjávarútsýni út að Bessastöðum og víðar.
Heildarskráning eignarinnar er 508 fm. samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er bílskúr 66,6 fm. Auk þess er um 40 fm í óskráðum rýmum sem eru nýtanlegir. Samtals heildarstærð er c.a 548,0 fm.
Smelltu á linkinn til að skoða húsið í 3DBókið skoðun hjá Gulla í síma 661 6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.isAðalhæð:Gengið er inn í húsið um tvöfalda viðarhurð inn í anddyri með náttúrusteini á gólfi, innbyggðum fataskáp og hringlaga loftglugga sem gefur góða birtu inn. Úr anddyrinu er gengið til hægri inn í þvottahús og sér hliðar inngang. Vel skipulagt rými með sérsmíðuðum fataskápum og góðu geymsluplássi. Þaðan er innangengt beint í bílskúrinn. Til vinstri frá anddyri er gengið inn í opið alrými með gegnheila hnotu á gólfum, stór og góð aukastofa með glerhandrið og glæsilegar hillur. Þar inn af er sér gestasalerni með náttúrustein á gólfi, og upp meðfram upphengdu salerni. Glæsileg handlaug og innbyggð blöndunartæki í spegli. Hringlaga þakgluggi gefur birtu inn og viðarveggur veitir ákveðna hlýju þar inn. Hurð þar við hlið er mjög rúmgott svefnherbergi með stóra vinnuaðstöðu, hnota á gólfi. Sér baðherbergi er inn af svefnherberginu með flísum á gólfi og á hluta af veggjum, baðinnrétting og sturta eru með innbyggðum tækjum. Speglaskápur er fyrir ofan handlaug og upphengt salerni þar á móti. Mjög mikið og flott skápapláss er í bæði svefnherberginu og í vinnustofunni einnig.
Aðalrýmið er opið, rúmgott á pöllum með hátt til lofts og einstakt útsýni hvert sem litið er. Í þessu rými er glæsilegt eldhús með sér borðstofu og sér kaffistofu með óhindrað sjávarútsýni sem og stórri og glæsilegri stofu. Tveir útgangar eru frá aðalrými út í garð, annar út á lóð og hinn út á verönd. Opið og stílhreint eldhús með sérsmíðuðum hvítum innréttingum og eldhúseyju með nýlegri marmaraplötu frá október 2024. Eldhúsið er búið tvöföldum ísskáp frá Liebherr, gaseldavél frá Smeg og uppþvottavél frá Miele. Hægra megin við eldhúsið er rúmgóð borðstofa. Þaðan er útgengt á verönd með grillaðstöðu og borðaðstöðu. Vinstra megin við eldhús er lítil setustofa sem snýr út að sjó með bogalaga glugga sem nær frá gólfi upp í loft. Stofan sjálf er með einstaklega fallegt útsýni til sjávar og víðar, hátt til lofts, og gólfsíða glugga að lofti sem gefur mikla birtu. Innbyggt hljóðkerfi frá Bose er í stofum, eldhúsi og inn í borðstofu. Önnur rúmgóð stofa er í opnu rými með mikilli lofthæð einnig, gler handriði skilur að þessar tvær stofur.
EFRI HÆÐ:Á efri hæð er hjónasvíta sem spannar alla hæðina. Svefnherbergið er rúmgott með gólfsíðum bogaglugga og útsýni til suðurs. Fataherbergið er staðsett á milli svefnherbergis og baðherbergis og er með sérsmíðuðum hnotuinnréttingum. Gólf er með kalksteini. Baðherbergið er með frístandandi baðkari, salerni, stórri sturtu og góðum skápum. Stór þakgluggi er í baðherberginu sem gefur góða náttúrlega birtu. Gólf er með kalksteinsflísum á allri hæðinni og gólfhiti. Aðgengi út á þaksvalir frá fataherbergi.
NEÐRI HÆÐ:Á neðstu hæð er spa-rými með niðurgröfnum sérhönnuðum heitum potti og setusvæði sem nýtist sem lounge-rými. Gólf og hluti veggja eru lögð norskum náttúrusteini og pottur er flísalagður. Sér líkamsræktarsalur með aðstöðu fyrir helstu æfingatæki og innbyggðu hljóðkerfi frá Bose. Gufubað er inn af líkamsræktarsalnum, klætt norskum náttúrusteini og flísum. Vínherbergi er með innréttingum úr eik og gólfin eru úr norskum náttúrusteini. Rýmið er vel skipulagt með hillum og geymsluplássi fyrir fjölbreytt vínsafn.
Fjölnota rými: Stórt rými sem getur nýst sem sjónvarpsstofa, tómstundaherbergi eða svefnherbergi. Hægt að ganga út á steinpall úr þessu rými. Auk þess er svo mjög rúmgott svefnherbergi með fataskápum og vinnuaðstöðu. Gólf er úr gegnheilli hnotu. Lagnir eru fyrir baðherbergi í þessu herbergi. Inn af svefnherberginu er gluggalaust herbergi á neðra plani sem nýtist sem sjónvarpsrými, tómstundaherbergi eða geymsla.
Baðherbergi með sturtu og salerni er milli vínherbergis og heilsurýmis.
Tæknirými: Á gangi á neðri hæð er stórt tæknirými sem er utan skráðra fermetra. Þar er staðsettur búnaður og stýringar fyrir helstu kerfi hússins. Rýmið er vandað og hannað með aðgengi og viðhald í huga.
Gegnheilt hnotugólf var slípað í október 2024. Gólfhiti er í öllu húsinu. Hurðir og innréttingar eru einnig úr hnotu. Kalksteinsflísar eru í hjónasvítu, þar með talið í svefnherbergi, fataherbergi og baðherbergi.
Öll baðherbergi í húsinu eru flísalögð og búin vönduðum innréttingum og blöndunartækjum. Innbyggt hljóðkerfi er í stofum, eldhúsi, borðstofu og líkamsræktarsal. Lýsing er hönnuð með áherslu á náttúrulega birtu.
Eignin er á 1.258 fm eignarlóð sem liggur að sjó. Við austurhlið hússins er pallur með heitum potti og útisturtu. Pallurinn er í góðu skjóli og nýtur útsýnis til suðurs. Vestan megin við húsið er stór viðarpallur með grillaðstöðu, útiborði og útihúsgögnum. Ofan á bílskúrnum er þakverönd sem býður upp á aukið útisvæði sem er aðgengileg út frá fataherbergi í hjónasvítu. Á baklóðinni er mjög stór grasflötur og viðarstígur sem gengur í átt að sjó. Þar er einnig steypt eldstæði. Framan við húsið er hellulögð aðkoma með upphituðu plani að bílskúr. Lóðin er skjólgóð og afmörkuð með limgerði og veggjum og nýtur fallegs útsýnis út á sjó.
Nánari upplýsingar veita: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma
661-6056 / gulli@remax.is
og Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma
862-2001 / gunnar@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-