Erling Proppé & REMAX kynna fallega tveggja herbergja íbúð við sjávarsíðuna í Gufunesi, Jöfursbási 11a. Íbúðin er á annarri hæð (201) í nýlegu fjölbýli, byggt árið 2021.
Skráð stærð eignar skv. FMR er 48,3 fm. Íbúðin er merkt 02-01. *** ATH AÐEINS FYRIR FYRSTU KAUPENDUR Á ALDRINUM 18-40 ÁRA. EKKI HMS LÁN - HEIMILD ER FYRIR DÝRAHALDI ***Eignin skiptist í:Forstofu, svefnherbergi, eldhús, stofu og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Nánari lýsing eignar:Anddyri: er flísalagt með skáp og fatahengi.
Eldhús: borðstofa og stofa eru í björtu alrými með parket á gólfi. Í eldhúsi er Innrétting með tengi fyrir uppþvottavél, bakarofn, helluborði og viftu.
-Útgengt er úr stofu út svalir
Baðherbergi: er með innréttingu, upphengdu salerni, "walk-in" sturtu", speglaskáp og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi: er með parketi á gólfi og rúmgóðum fataskápum.
Hjólageymsla og þvottahús: er í sameign á jarðhæð, einnig er vinnuaðstaða/veislusalur sem íbúar geta leigt.
Íbúðir Þorpsins vistfélags eru á sjávarlóð í nýju hverfi í Gufunesi. Frá lóðinni er glæsileg sjávarsýn og útsýni yfir Geldinganes og Viðey en einnig hafa íbúar haft afnot af matjurtargarði sem Reykjavíkurborg lánar Jöfursbás 11. Í hverfinu og meðfram lóðinni verða göngu- og hjólastígar meðfram ströndinni sem tengjast grónum íbúðasvæðum í Grafarvogi. Í Gufunesi verður blönduð byggð fyrir íbúðir, smærri atvinnurekstur, skapandi iðnað, menningu, menntun, sýningar- og atburði, ferðamannaiðnað og sjálfbærar samgöngur. Gufunesið verður þannig einstakt hverfi í borginni þar sem iðnaðarmannvirki, manngert landslag, afþreying- og útivist og stórfengleg fjallasýn við sjávarsíðu mynda órjúfanlega heild.
Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar:
Erling Proppé.lgf // s. 690-1300 // erling@remax.is