RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Falleg og mikið endurnýjuð 87,80 m² fimm herbergja íbúð með fjórum svefnherbergjum á eftirsóttum stað í Hafnarfirði.
Íbúðin hefur gengist undir miklar endurbætur árið 2025;
- nýtt eldhús
- nýtt baðherbergi
- nýtt gólfefni
- nýjar innihurðir
- nýir miðstöðvarofnar
- nýir gluggar og svalahurð3D linkur hér - (með og án húsgagna)Nánari lýsing:
Forstofa: Nýlegt harðparket á gólfi og góðir skápar fyrir yfirhafnir.
Eldhús: Nýtt eldhús frá árinu 2025 með hvítri innréttingu og góðu skápaplássi. Fallegar tréborðplötur og innbyggð tæki, þar á meðal uppþvottavél með sjálfvirkri opnun, ísskápur/frystir, bakaraofn með sjálfhreinsikerfi, örbylgjuofn og vínkælir.
Stofa og borðstofa: Rúmgott og bjart alrými með nýju harðparketi á gólfi. Stór gluggar hleypa inn mikilli náttúrulegri birtu og útgengi er á svalir sem snúa út frá húsinu. Svalirnar voru málaðar 2026.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með nýju harðparketi á gólfi og nýjum, innbyggðum fataskápum með ljósum.
Barnaherbergi I: Með nýju harðparketi á gólfi. Þetta herbergi er í dag notað sem fataherbergi.
Barnaherbergi II: Með nýju harðparketi á gólfi.
Barnaherbergi III: Með nýju harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Endurnýjað árið 2025 með flísum á gólfi, baðplötum á veggjum og loftaþiljum frá Þ. Þorgrímssyni. Innangeng sturta með vönduðum tækjum frá Tengi, upphengt salerni og handklæðaofn.
Brunavarnir: Í öllum rýmum íbúðarinnar eru reykskynjarar frá Jalo Helsinki sem ekki þarf að skipta út fyrr en árið 2035.
Geymsla er á jarðhæð. Glugginn var endurnýjaður á henni 2025.
Sameiginleg aðstaða: Á jarðhæð hússins er sameiginleg hjólageymsla, þvottahús og þurrkherbergi sem er í samnýtingu með Öldugötu 46-48.
Húsfélag: Húsfélag er sameiginlegt og er mánaðarlegt gjald íbúðar 35.000 kr.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is