RE/MAX Ísland logo
Skráð 26. feb. 2026
Söluyfirlit

Straumhella 26

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
157.1 m2
Verð
62.900.000 kr.
Fermetraverð
400.382 kr./m2
Fasteignamat
39.950.000 kr.
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2330632
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
0 - Úthlutað
Erling Proppé & REMAX kynna Glæsileg bil með stórri hurð og mikilli lofthæð við Straumhellu 26, 221 HFJ. 

Um er að ræða einnar hæða upphitað iðnaðar- og geymslu húsnæði sem að skipt er upp í 10 einingar með sameiginlegu inntaksrými. Norðanmegin í húsinu eru fimm rými og sunnanmegin eru fimm rými. Húsnæðið er skilgreint sem iðnaðar- og geymsluhúsnæði.

Stærð bila:
101 - 157,3 m2 - kr. 65.900.000 - ENDI
102 - 157,1 m2 - kr. 62.900.000
103 - 157,1 m2 - kr. 62.900.000
104 - 157,1 m2 - kr. 62.900.000
105 - 202,1 m2 - kr. 84.900.000 - ENDI (12,8m breidd x 15,5m dýpt )
106 - 202,1 m2 - SELT
107 - 157,1 m2 - SELT

108 - 157,1 m2 - kr. 62.900.000
109 - 157,1 m2 - SELT
110 - 157,3 m2 - SELT


ATH. Allt gólfflötur, engin milliloft inn í stærðum. 


Breidd x Dýpt: ca. 10 m að innanmáli x 15,5m að dýpt.
Lofthæð: ca. 9m í mæni og 7m í útvegg. 
Iðnaðarhurð: 4,2m hæð x 4m breidd

Burðarvirki / Frágangur utanhúss
Burðavirki byggingar er límtré. Gólfplata og sökklar eru úr járnbentri steinsteypu á burðahæfu undirlagi.
Grundun, byggingin stendur á fylltum og þjöppuðum púða. Sökklar eru einangraðir að utan með 100mm polystyren einangrun. Sökklar eru einangraðir að innan og með 100
mm polystyren einangrun og sömuleiðis undir gólfplötu. Húsið er klætt með yleiningum, steinullareiningar 80 mm á þykkt.
Þak á húsnæði er léttþak með steinullareiningum 120 mm.
Umgangshurðir verða úr PVC. Iðnaðarhurðar eru frauðfylltar samlokuhurðar sem opnast á brautum.
Stálklæddar einingar í útveggjum og þaki verða ekki klædd af.
Litur utanhúseininga, hurða og þaks er dökkur.
Uppsett myndavélakerfi komið í umsjá húsfélags.

Lagnaleiðir, upphitun, loftræsting
Inntök vatns og rafmagns verður í inntaksými. Neysluvatnskerfi er hefðbundið. Varmaskiptir skal vera á neyðsluvatnskerfi sem tekur hitann niður í 30-65 gráður á celsius. Gólfniðurföll eru staðsett í votrýmum sem og í geymsluhúsnæði sjá merkingar á grunnmynd.
Niðurfallsrör og rennur verða utanáliggjandi.

Raflagnir eru utanáliggjandi eða lagðar í steypta plötu. Rafmagnsinntak er sameiginlegt fyrir allt húsið og er staðsett í inntaksrými ásamt töfluskápum fyrir hverja notendur. Húsið verður upphitað með rafmagnsblásurum með hitaveitu sem varmagjafa.

Innveggir og innihurðir
Innveggir á milli geymslurýma eru steinullar yleiningar eru 105 mm á þykkt.

Lóð
Lóðin verður að hluta til í sameign allra, bílastæði verða á lóð meðfram lóðamörkum. Malbikað eftir veðurskilyrðum.

Afhending
Bilin verða afhent að öllu óbreyttu fyrir lok Mars 2026.

Virðisaukaskattskvöð verður á eigninni sem kaupandi tekur við.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Erling Proppé lgf. // 690-1300 // erling@remax.is


Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.500 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til  fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.
 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Tunguhella 9
221 Hafnarfjörður
179 m2
Lager - Iðnaðarhúsnæði
1
363 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin