Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna til sölu:
Einstaklega glæsilegt og uppgert 170,3 fm. einbýlishús á þremur hæðum á einum besta stað í hjarta Akureyrar við Þingvallastræti 10.
Rut Káradóttir innanhússarkitekt sá um hönnun á breytingum og hefur eignin öll verið gerð upp á glæsilegan máta. Vel umgengin og vönduð eign.
Nánari lýsing / Eignin er á þremur hæðum sem skiptist í: Jarðhæð, þar er eitt svefnherbergi, sjónvarpsherbergi, baðherbergi, þvottahús og bakinngangur.
Á miðhæðinni er anddyri, stórt og opið rými með eldhúsi, borðstofu og stofu - Gengið er út á sólpall úr eldhúsi.
Á rishæð eru svo tvö svefnherbergi og baðherbergi.
Jarðhæð:Svefnherbergi I er með parket á gólfi.
Sjónvarpsherbergi er með parket á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og á veggjum í kringum sturtuna. Hvít innrétting með marmara borðplötu. Stór og rúmgóður sturtuklefi og vegghengt salerni.
Þvottahús er með hvíta innréttingu með tengi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Í þvottahúsi er einnig bakinngangur í húsið.
Miðhæð:Forstofa er með flísar á gólfi og opið fatahengi.
Eldhús er í fallegu opnu rými með parketi á gólfi. Dökk eldhúsinnrétting og frístandandi eyja. Stór gaseldvél er í innréttingu. Út frá eldhúsi er gengið útá suður-verönd.
Rúmgóð stofa og borðstofa með parketi á gólfi og opnum arni.
Rishæð: Baðherbergi með flísar á gólfi og kringum baðkar. Dökk innrétting með stein á borði.
Svefnherbergi II er með parketi á gólfi og hillur.
Svefnherbergi III er með parket á gólfi.
Um er að ræða glæsilega eign í göngufæri við sundlaug Akureyrar, miðbæinn og alla helstu þjónustu.
Búið er að endurnýja þak, glugga, útihurðar, lagnir, rafmagn og allt að innan. ( framkvæmt að mestu árið 2014 )
Hellulagt bílaplan með lýsingu og 14 fm geymslu/garðskúr er á lóð. Byggingaréttur á 60,0 fm.
Nánari upplýsingar veita: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma
661-6056 / gulli@remax.is og Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma
862-2001 / gunnar@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-