RE/MAX Ísland logo
Opið hús:27. okt. kl 16:15-17:00
Skráð 24. okt. 2026
Söluyfirlit

Lynggata 2

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
99.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
83.900.000 kr.
Fermetraverð
842.369 kr./m2
Fasteignamat
86.900.000 kr.
Brunabótamat
87.270.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Löggiltur fasteignasali / Viðskiptafræðingur
Byggt 2017
Þvottahús
Lyfta
Garður
Gæludýr leyfð
Aðgengi fatl.
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2366384
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Upprunalegt (2017)
Raflagnir
Upprunalegt (2017)
Frárennslislagnir
Upprunalegt (2017)
Gluggar / Gler
Upprunalegt (2017)
Þak
Upprunalegt (2017)
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
svalir og verönd.
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Í ferli hjá húsfélaginu er aðgerðaáætlun um lagfæringar vegna leka frá hurðum ákveðinna íbúða og viðgerð á klæðningu sem reiknað er með að framkvæmdasjóður nái að dekka. Ef úrbætur á klæðningu reynast kostnaðarsamari verður boðað til annars húsfundar. Sjá nánar á húsfélagsyfirlýsingu og fylgiskjölum á snjallsíðu eignarinnar. 
Gallar
Skemmdir eru sýnilegar á gerefti hurðar inn á baðherbergi. Brotið er smávægilega upp úr hurð inn í herbergi I og II.
Guðbjörg Helga og Gylfi Jens hjá RE/MAX kynna skemmtilega, bjarta og vel skipulagða íbúð að Lynggötu 2, 210 Garðabæ.
Íbúðin er 99,6 fm og er vel staðsett í Urriðaholti, er með sérinngangi og einkastæði í bílastæðahúsi. Hún er 3ja herbergja með 2 rúmgóðum herbergjum og þvottaherbergi innan íbúðar. Hellu/graslögð austurverönd (11,4 fm) fylgir íbúðinni og einnig skjólgóðar 8,5 fm vestursvalir. 


Um er að ræða íbúð í klæddu staðsteyptu fjölbýlishúsi með lyftu sem var byggt 2017. Bílastæðahús er á jarðhæð. en einnig stæði ofan við á lóðinni og við götu. Gott rými er umhverfis húsið sem er ekki raunin í öllum nýlegri fjölbýlishúsum. Húsið telur jarðhæð auk fjögurra hæða og er þessi íbúð á 1. hæð (2. hæð frá götu).  Leikvöllur með leiktækjum er á næstu lóð og í augnsýn frá íbúðinni sem er einstaklega þægilegt fyrir foreldra með ung börn. Í hverfinu eru verslanir, kaffihús, leikskóli, grunnskóli og fallegar göngu- og hjólaleiðir auk golfvallar. Þetta hús er byggt með aðgengi fyrir alla í huga. Tvö sérmerkt bílastæði fyrir fatlaða eru á bílaplaninu sem er framan við inngang íbúðarinnar. 

Skipulag eignarinnar:
Forstofa, hol opið við alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö herbergi, baðherbergi, þvottaherbergi innan íbúðar, sérgeymsla og sérmerkt stæði í bílageymslu.

NÁNARI LÝSING:
Vandað harðparket er í alrými og á herbergjum og flísar á baðherbergi, þvottaherbergi og forstofu. Hvítar innihurðir. 
Forstofa:  Sérinngangur er frá bílaplaninu við húsið ofanvert. Útidyrahurð er með gleri og glugga í hliðarramma sem veitir góðri birtu í rýmið. Tvöfaldur fataskápur og vegghengt fatahengi með hillu. Fallegar ljósar gólfflísar. 
Alrými með stofu, borðstofu, eldhúsi og útgengi á svalir. Björt setustofa með stórum glugga eftir einni hlið og útgengi á rúmgóðar svalir. Vel skipulögð L-laga eldhúsinnrétting með hvítri og brúnni viðaráferð sem gefur aukna tilfinningu fyrir hlýju. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylga með. Alrýmið býður upp hvort sem er kringlótt eða ílangt borðstofuborð. Gardínustöng.
Herbergi I: Einstaklega rúmgott herbergi með tveimur gluggum og skápum eftir einum vegg með miklu skápaplássi. Gardnínustöng
Herbergi II: Rúmgott herbergi með tvöföldum fataskáp og tveimur ílöngum gluggum sem gefa skemmtilegan svip. Rúllugardínur.
Baðherbergi: Stílhreint og vel skipulagt baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf. Walk-in sturta og opnanlegur gluggi nærri henni sem gefur góða loftun.  Þar er góð innrétting með skúffum og handlaug, upphengt salerni, sturta með gleri og hvítur handklæðaofn.
Þvottaherbergi: Þvottaherbergi er innan íbúðarinnar og eru tengi fyrir þvottavél og þurrkara. einnig eru inntök fyrir krana ef fólk hefur áhuga að setja upp stálvask. 
Sérgeymsla: Geymslan er 7,4 fm, staðsett á jarðhæð hússins á geymslugangi.
Sameign allra: Hjóla og vagnageymsla, geymsla og tæknirými, lyfta og stigahús. yfir 20 bílastæði á lóðinni utandyra, þar af tvö sérmerkt fyrir fatlaða. 
Sameign sumra: Þessi íbúð (102) ásamt þeirri til vinstri (101) eiga saman viðbótina við einkavörnd þessarar íbúðar, svæðið framan við innganga hurðanna og að gangstétt. Rýmið er í opnu flæði við einkaverönd íbúðarinnar
Bílastæði í bílastæðahúsi: Á jarðhæð er snyrtilegur bílakjallari með 20 stæðum. Sérmerkt stæði (B10) fylgir íbúðinni. Bílastæðið er utan uppgefinnar fermetratölu.
 
       >> Smelltu hér til að skoða íbúðina betur í þrívíðri sýn  << 

       *SKRÁNING Á OPIÐ HÚS þriðjudaginn 27. október kl 16:15-17:00.
        við skráningu opnast linkur inn á snjallsíðu eignarinnar með  öllum upplýsingum*

Staðsetning:
Skemmtileg og góð staðsetning í þessu nýlega umhverfisvæna hverfi sem er Svansvottað. Í nærumhverfi er skóli, leikskóli, verslanir, Ikea, kaffihús og fleira. Búið er að opna veg úr Urriðaholtinu inn á veginn Flóttamannaleið, og því orðið stutt leið að golfvelli Odds. Fallegar gönguleiðir eru allt í kring auk þess sem Urriðavatn er nærri.

Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar: 
Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur s. 897 7712 og gudbjorg@remax.is
Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður s. 822 5124 og gylfi@remax.is
 
Byggt 2017
Fasteignanúmer
2366384
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B1
Númer eignar
0
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
9.220.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Urriðaholtsstræti 28
210 Garðabær
77,9 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
1.026 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Urriðaholtsstræti 24
210 Garðabær
90,2 m2
Fjölbýlishús með lyftu
32
886 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Lynggata 2
210 Garðabær
93,4 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
855 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Lynggata 2
210 Garðabær
100,7 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
843 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin