Erling Proppé & REMAX kynna: Glæsilegt, bjart og mikið endurnýjað fjölskyldu einbýli við Vesturberg 69 í Reykjavík.
Húsið er byggt árið 1974 og er samtals 226,50 m². Eignin hefur gengið í gegnum mjög viðamiklar endurbætur að innan sem utan. Allar neysluvatnslagnir, hitagrind, ofnar, skolplagnir og rafmagn er nýtt, auk þess sem gluggar og hurðir hafa verið skipt út. Húsið býður upp á björt og nútímaleg rými með m.a. nýrri sérsmíðaðri eldhúsinnréttingu, sérsmíðuðum fataskápum í anddyri og fyrir herbergin ásamt vönduðum baðherbergjum.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við: Erling Proppé lgf // 690-1300 // erling@remax.is
Aðalhæð
Aðalrými hússins samanstendur af stofu, eldhúsi og gestasalerni, ásamt anddyri. Gólf flotuð á aðalhæðinni fyrir utan anddyri og baðherbergi sem er flísalagt.
Anddyri: Flísalagt anddyri með nýjum, sérsmíðuðum skápum.
Herbergi: Rúmgott herbergi í alrými sem gæti nýst sem barnaherbergi eða skrifstofa.
Eldhús: Ný, sérsmíðuð hvít innrétting með nýjum og vönduðum tækjum, innbyggður bakaraofn í vinnuhæð frá AEG. Nýtt spanhelluborð frá AEG. Nýr vaskur og Grohe blöndunartæki. Uppþvottavél frá AEG og gert ráð fyrir innbyggðum ísskáp.
Svefnherbergisálma hússins telur hjónaherbergi og 3 barnaherbergi, að auki er herbergi í alrými og eru því svefnherbergin 5 talsins á aðalhæð.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með nýjum, sérsmíðuðum fataskápum.
Svefnherbergi: Á ganginum eru 3 svefnherbergi til viðbótar með nýjum ofnum og björtum gluggum. Á herbergisgangi er tvöfaldur fataskápur sem þjónar þessum herbergjum.
Baðherbergi: Glæsilegt baðherbergi, endurnýjað frá grunni. Skólplagnir endurnýjaðar að stamma og svo fóðraður út í brunn. Flísalagt með 60x120 flísum frá Álfaborg, vegghengt salerni og nýjar innréttingar með Grohe blöndunartækjum. Nýr handklæðaofn. Lagnir fyrir þvottavél og þurrkara eru til staðar, þó möguleiki sé á að skipta út þvottaaðstöðu fyrir skáp vegna þvottahúss á neðri hæð. Sturta með glervegg og náttúruleg lýsing frá þakglugga.
Stofa og borðstofa: Rúmgott og bjart alrými með mikilli lofthæð og stórum ál/tré gluggum sem veita mikið náttúruljós. Gólf flotuð, tilbúin fyrir gólfefni.
Neðri hæð:
Þvottahús og stórt "Íbúðarsvefnherbergi" með eldhúsaðstöðu sem býður upp á mikla möguleika.
Gestasalerni / Baðherbergi: Nýlega smíðað frá grunni með nýjum lögnum og niðurfalli. Flísalagt með 60x120 flísum frá Álfaborg, vegghengt salerni og nýjar innréttingar með Grohe blöndunartækjum. Nýr handklæðaofn. Gert ráð fyrir að koma fyrir sturtu ef búa á til auka íbúð.
Þvottahús: Nýtt og bjart þvottahús með nýrri innréttingu og flísalögðu gólfi. Gert er ráð fyrir allt að þremur þvottavélum eða sambærilegum tækjum.
Svefnherbergi með eldhúsaðstöðu: Stórt svefnherbergi á neðri hæð með nýrri eldhúsinnréttingu, helluborði og vaski. Sér rafmagnstafla fyrir neðri hæðina gefur möguleika á að nýta rýmið sem séríbúðarrými.
Bílskúr: Bílskúr með heitu og köldu vatni, vaski, ofni og góðu aðgengi.
Ytra byrði húss:
Húsið hefur verið sprunguviðgert og múrað upp á nýtt og málað að utan á sama tíma. 2025
Allir gluggar og útidyrahurðir hafa verið endurnýjaðar, með vönduðum ál/tré gluggum frá Gluggasmiðjunni. 2025
Útilýsing hefur verið endurnýjuð. 2025
Járn og pappi á þaki endurnýjað fyrir u.þ.b. 3-4 árum, ásamt þakgluggum.
Að innan:
Innandyra hafa allar neysluvatnslagnir og hitagrind verið endurnýjaðar ásamt öllum ofnum. Allar skolp- og frárennslislagnir endurnýjaðar inn í húsi og fóðraðar að brunni. Allt rafmagn er endurnýjað, nýtt dregið í, dósir brotnar upp og gerðar tvöfaldar, með tveimur nýjum rafmagstöflum (sér tafla fyrir neðri hæð). Baðherbergi á efri hæð og gestasalerni á aðalhæð eru ný frá grunni. Miðhæðin er flotuð og tilbúin fyrir gólfefni. Nýjar hvítar yfirfelldar hurðir eru í öllu húsinu frá Birgisson. Sérsmíðaðir fataskápar og innréttingar að hluta.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við: Erling Proppé lgf // 690-1300 // erling@remax.is
Ath. Myndir unnar með gervigreind eru aðeins til að gefa hugmynd um hvernig útlit gæti verið og ber að taka með fyrirvara.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 mvsk.