Remax fasteignasala og Elvar Frímannsson löggiltur fasteignasali kynna rúmgóða og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á annarri hæð í Salahverfinu í Kópavogi. Stærð eignarinnar er alls 100 fm og skiptist samkvæmt FMR 87,6 fm íbúð og 12,4 fm geymsla í sameign. Einnig fylgir með stæði í bílakjallara þar sem hægt er að hlaða rafbíl.
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inní forstofu með góðum skáp og parket á gólfi.
Eldhús: Bjart og rúmgott eldhús með eyju, innréttingar svartar með steingrárri borðplötu. Parket á gólfi og opnanlegt fag á glugga í eldhúsi.
Stofa: Bjart og opið alrými með glugga á tvo vegu, útágengt á svalirnar úr stofunni, parket á gólfi.
Barnaherbergi: Parket á gólfi, nægt rými fyrir fataskáp og/eða heimavinnuaðstöðu, útsýni til norðurs
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum og parket á gólfi, útsýni til norðurs.
Þvottahús: Vel skipualagt þvottahús með innréttingum á tveimur veggjum, vaskur og tengi fyrir bæði þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Baðherbergi: Hvít innrétting, bæði sturta og baðkar. Flísar á gólfum og veggjum.
Svalir: Rúmgóðar svalir með fallegu útsýni til suðvesturs.
Bílakjallari: Stæði fylgir með íbúðinni í bílakjallara, rafhleðsluaðstaða er til staðar, einnig er aðstaða fyrir að þrífa bíla í kjallara.
- Endurbætur á íbúð:- Eldhúsinnrétting endurnýjuð árið 2024, nýlegt spanhelluborð og ofn
- Heilmálun 2021
- Nýjar innihurðar og parket 2021
- Utanhúss framkvæmdir:- Þak málað 2024
- Gluggar málaðir 2024
- Múrviðgerðir 2025
- Annað:- Lyklalaust aðgengi í sameign og bílakjallara
- Led lýsing í bílageymslu 2025
- Ný lyfta í sameign 2026
Þetta er björt og vel skipulögð íbúð á góðum stað í Salahverfi. Í nágrenninu eru verslanir, skóli og öll helsta þjónusta sem gerir staðsetninguna bæði þægilega og fjölskylduvænaAllar nánari upplýsingar um eignina veitir Elvar Frímannsson í síma 6596606, elvar@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.