RE/MAX ásamt Guðbjörgu Helgu og Gylfa Jens löggiltum fasteignasölum kynna Grensásveg 58, 108 Reykjavík.Vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 3. hæð (gengið upp 1,5 hæðir) með 3 svefnherbergjum og rúmgóðum austursvölum með útsýni til fjalla, Hver fermetri nýtist til hins ítrasta í íbúðinni. Húsið er nýmálað og múrviðgert að utan. Fasteignamat 2026 er 62.600.000 kr.
Í
búðin er tóm og laus til afhendingar. **
SÆKTU SÖLUYFIRLIT SJÁLFVIRKT HÉR**
**SKOÐAÐU EIGNINA Í ÞRÍVÍDD (3-D) MEÐ OG ÁN HÚSGAGNA** (ÞÚ GETUR FJARLÆGT HÚSGÖGN MEÐ ÞVÍ AÐ ÝTA Á STÓLINN NEÐST TIL VINSTRI)
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er birt heildarstærð eignar 77,3 fm, íbúðarrýmið er 69,4 fm og sérgeymsla á geymslugangi í sameign í kjallara 7,9 fm.
Núverandi skipulagi hefur verið breytt frá upphaflega samþykktum teikningum, þar sem íbúðin er opinberlega skráð 3ja herbergja með 2 svefnherbergjum, en eldhús var flutt í alrými við stofu og sett herbergi þar sem það var áður sem gerir hana 4ja herbergja í dag með 3 herbergjum og stofu. Einnig er stór sameiginleg geymsla í sameign sem og þvottahús (tengi er einnig fyrir þvottavél á baðherbergi). Í sameign er jafnframt hjólageymsla.
Núverandi skipulag eignar: Forstofa/gangur, eldhús, stofa, þrjú herbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu, auk sérgeymslu í kjallara.
Nánari lýsing:Skemmtilegt fyrirkomulag á sameiginlegu stigahúsi, þar sem íbúðir eru á hverjum palli og snúa ýmist til austurs eða vesturs.
Gólfefni íbúðar er samstætt harðparkert fyrir utan baðherbergi sem er flísalagt.Forstofa / gangur: Komið er inn í íbúð í forstofuna/gang sem tengir saman öll rými eignarinnar.
Herbergi 1: Mjög rúmgott með stórum opnum fataskáp (rennihurð til í geymslunni), gluggi til austurs. Útsýni.
Herbergi 2: Rúmgott. með innbyggðum opnum fataskáp (hurð til staðar óuppsett), gluggi til austurs. Útsýni.
Herbergi 3: (var eldhús fyrir breytingu), en er nú herbergi. Gluggi til austurs. Útsýni.
Baðherbergi: er endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf. Á baðherberginu er sturta, upphengt salerni, hvítur skápur undir handlaug, handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél.
Eldhús: er með snyrtilegri hvítri innréttingu á einum vegg. Eldavél og vifta. Stæði fyrir uppþvottavél.
Stofa: er björt og er útgengt er á austursvalir. Mikið og gott útsýni er úr stofunni.
Geymsla: er í kjallara hússins og er hún 7,9 fm með veggföstum hillum. Mjög rúmgóð og djúp geymsla.
Í sameign er stigahús, þvottahús, þurrkherbergi og hjólageymsla.
Samantekið er um að ræða vel skipulagða eign miðsvæðis í Reykjavík, þar sem stutt er í alla þjónustu, ss. leikskóla, grunnskóla, menntaskóla, Austurver, Skeifuna með allri sinni þjónustu og verslunum og kjötverslun.
Íbúðin hefur verið í útleigu allan eignartíma eiganda og því þekkir hann ekki vel til eignarinnar. Við bendum því kaupanda á að skoða eignina vel.
Nánari upplýsingar og bókanir sýninga:Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur s. 897 7712 og tölvunetfang: gudbjorg@remax.is
Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður s. 822 5124 og tölvunetfang: gylfi@remax.is