RE/MAX Ísland logo
Opið hús:14. okt. kl 16:30-17:30
Skráð 10. okt. 2025
Söluyfirlit

Engjasel 72

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
90 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
665.556 kr./m2
Fasteignamat
51.650.000 kr.
Brunabótamat
44.220.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Löggiltur fasteignasali / Viðskiptafræðingur
Byggt 1976
Þvottahús
Garður
Útsýni
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2055526
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Nýleg rafmagnstafla
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjaðir að hluta
Þak
Endurnýjað járn 2019-2021
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já Suðvestur
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Samþykkt var að leita tilboða í endurnýjun á teppum og málun á stigahúsi á aðalfundi. Eignaumsjón er að leita tilboða. Fundur boðaður í framhaldi til umræðu og atkvæðagreiðslu. 
Gallar
Eldhúsgluggi farinn að láta á sjá.
Það er leki í bílastæðahúsi frá þaki þess (garður er ofan á honum). Það er ekki leki við stæðið sem fylgir eigninni. 
Guðbjörg Helga og Gylfi Jens hjá RE/MAX kynna í einkasölu: Engjasel 72 m/ bílastæði í bílastæðahúsi, 109 Reykjavík
Einstaklega björt og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á fjórðu og efstu hæð með miklu útsýni. Rúmgóðar suðvestursvalir og stæði í bílastæðahúsi. 
Gólfflötur íbúðar er stærri en uppgefnir fermetrar.  Eignin býður upp á þann möguleika að opna upp í þakrými og útbúa íbúðarými þar sem hluta af íbúðinni. Fordæmi er um slíkt í húsinu.  2019-2021 var farið í stórar framkvæmdir á utanverðu húsinu, sjá neðar. Fasteignamat 2026 verður 57.300.000. Eignin getur verið laus fljótlega. 

Uppgefin heildarstærð hjá Fasteignaskrá HMS er 90 fm, þar af er íbúðin skráð 77 fm og bílastæði í bílastæðahúsi 13 fm. Auk þess er um 8 fm sérgeymsla í kjallara utan uppgefinna fermetra. Gólfflötur íbúðar er að hluta undir súð og því eru nýtanlegir fermetrar innan íbúðar mun fleiri en uppgefnir fermetrar. 

        **SÆKJA SÖLUYFIRLIT SJÁLFVIRKT HÉR**

        **SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍDD OG GANGTU UM HANA Í TÖLVUNNI**
        (Þú getur skoðað eignina án húsgagna með aðstoð gervigreindar með því að smella á stólinn niðri til vinstri inni í þrívíddinni)

Núverandi skipulag eignar:
Forstofa, stofa/borðstofa, gangur, tvö herbergi, svalir, eldhús, baðherbergi, þvottaherbergi með geymslu innaf, sérgeymsla í kjallara og stæði í bílastæðahúsi.

Nánari lýsing: 
Íbúðin er með harðparketi á stofu og herbergjum, en önnur rými eru flísalögð. Málað gólf í þvottahúsi. 
Forstofa: Opin við stofu. Góður tvöfaldur skápur fyrir yfirhafnir. Flísar á gólfi. 
Stofa/ borðstofa: Einstaklega björt með stórum gluggum. Ljósgrátt harðparket á gólfi. Mikil ónýtt lofthæð er ofan stofulofts sem býður upp á ýmsa möguleika með samþykki húsfélags, en fordæmi er um slíkt í hinni íbúðinni á hæðinni. 
Eldhús: Góð eldhúsinnrétting beyki/gler framhliðar sem er L-laga með góðu skápaplássi. Dökkgrá borðplata. Tengi fyrir uppþvottavél og ísskáp, Frístandandi eldavél með spanhelluborði. Flísar á gólfi og milli innréttinga. 
Herbergi 1: Rúmgott herbergi með hvítum skápum og vegghillum. Útgengi er á djúpar góðar svalir með stórkostlegu óhindruðu útsýni til suðurs. 
Herbergi 2: Rúmgott og telur fleiri nýtanlega fermetra en uppgefnir eru því hluti er undir súð. Sérsmíðaður skápur og hillueining á einum vegg sem fylgir. Magnað útsýni með fjallasýn. 
Baðherbergi: Sturtubotn með rennihurðum, flísalagðir veggir. Nýtt gólffest klósett, vaskur með skáp undir og vegg, glerskápur með hillu á vegg. 
Þvottahús: Inna af baðherbergi er þvottahús, staðsett undir súð. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla1:  Er innaf þvottahúsinu, vegghillur. Er undir súð.
Geymsla 2:  Staðsett í kjallara hússins og er hún utan uppgefinnar fermetratölu. 
Einkabílastæði í bílastæðahúsi: Merkt einkastæði fylgir íbúðinni skráð. Möguleiki er að yfirtaka leigusamning við ON á rafhleðslustöð við stæðið. Í bílastæðahúsinu eru tvö almenn skammtíma bílastæði, ætluð sem þvottaaðstaða fyrir bíla og og hitt sem þurrkstæði. 
Sameign í húsi: Hjóla og vagnageymsla í kjallara með sérinngangi, en einnig er innangengt úr stigahúsi. Sorpgeymsla: Farið er aftanvið húsið og þar er sorpgeymsla. Sorprenna í stigahúsi er enn í notkun.

Framkvæmdasaga síðustu ár:
2025:
Ný háþrýstidæla við þvottastæði í bílastæðahúsi
2024: Bílastæðahús málað að utanverðu. Ljós í sameign endurnýjuð. Sett skynjaraljós neðan við húsið er gengið að ruslakompu. 
2023: Nýjar rafmagnstöflur í sameign
2023: Nýtt dyrasímakerfi sett upp í bæði stigahús. Myndavéladyrasími.
2022: Hitagrind yfirfarin. Allir þrýsti- og hitamælar, tæmingar-, einstefnu- og öryggislokar endurnýjaðir 
2019-2021: Ytra byrði hússins tekið í stórum framkvæmdum. Húsið var múrviðgert og það klætt viðhaldsléttri klæðningu. Svalir/ svalahandrið voru brotin af og endurbyggð, sett stál/glerhandrið. Þakklæðning endurnýjuð og þakborð þar sem þurfti. Gluggar í húsinu voru yfirfarnir og þeir gluggar sem þurfti þá endurnýjaðir. Búið er að endurnýja meirihluta glugga í húsinu.  
2021: Bílastæðahús; Tryggingatjón eftir bruna þar og það tekið í gegn að innanverðu eftir hann. Nýjar raflagnir, ný tafla sett upp, nýr hurðaopnari og nýir blásarar.

Sérlega fjölskylduvæn staðsetning með fallegum göngu- og hjólaleiðum, útivistarmöguleikum og stutt er í  alla þjónustu og verslun, grunnskóla, leikskóla, menntaskóla og íþróttastarf.

Allar nánari upplýsingar veita:
Guðbjörg Helga, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur s. 897-7712 og í netfanginu gudbjorg@remax.is
Gylfi Jens, löggiltur fasteignasali og lögmaður s. 822 5124 og í netfangingu gylfi@remax.is
Byggt 1984
13 m2
Fasteignanúmer
2055526
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
25
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Brunabótamat
4.620.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Reyrengi 10
112 Reykjavík
81.3 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
312
761 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Flókagata 27
105 Reykjavík
75.7 m2
Fjölbýlishús
312
791 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Orrahólar 7
111 Reykjavík
72.8 m2
Fjölbýlishús með lyftu
211
795 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
60 ára og eldri
Image
Opna eign
Skúlagata 40
101 Reykjavík
84.5 m2
Fjölbýlishús með lyftu
11
733 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2025 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin