Vel skipulögð tveggja herbergja íbúð með svölum og merktu bílastæði við Þórufell
Til sölu er björt og vel skipulögð tveggja herbergja íbúð á 4. hæð við Þórufell. Eigninni fylgir merkt bílastæði, sérgeymsla á jarðhæð og aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi.
Sameign er snyrtileg og allir gluggar í húsinu hafa verið endurnýjaðir.
Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Samkvæmt skráningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) er birt flatarmál eignarinnar 57 fm.Allar nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Gíslason löggiltur fasteignasali í gsm 694-4700 eða steini@remax.is.Nánari lýsingForstofa: Fataskápur og dúkur á gólfi.
Eldhús: Eldhúsinnréttingu og heimilistæki vantar, sem gefur nýjum eiganda frábært tækifæri til að hanna og innrétta eldhúsið eftir eigin smekk og þörfum. Dúkur er á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með harðparketi á gólfi. Frá stofu er útgengt á rúmgóðar svalir.
Svefnherbergi: Gott herbergi með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergi með sturtuklefa og dúk á gólfi.
Umhverfið
Eignin er staðsett á góðum stað í Breiðholti þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Í göngufæri eru meðal annars Breiðholtslaug, menningarmiðstöðin Gerðuberg, Fellaskóli, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, leikskólar, verslanir og þjónusta auk íþróttasvæðis Leiknis.
Allar nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Gíslason löggiltur fasteignasali í gsm 694-4700 eða steini@remax.is.Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX Fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.