Sigrún Matthea hjá RE/MAX kynnir: Björt, rúmgóð og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð í litlu fjölbýli, eign á annarri hæð ásamt bílskúr Lyngmóar 12 eign á frábærum stað í Garðabæ. Barnvænt svæði þar sem stutt er í verslanir og ýmsa aðra þjónustu á Garðatorgi, stutt að sækja leik- grunnskóla og Fjölbraut í Garðabæ, á íþróttasvæði Stjörnunnar og sundlaug í Ásgarði.
Stærð eignar samkvæmt HMS er íbúð 97m2 + bílskúr 16,2m2 + geymsla 6,3m2 samtals 113,2m2
Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi, bílskúr og sér geymslu, ásamt þvotta - þurrkherbergi, hjóla og vagnageymslu í sameign.
Fallegt útsýni til norðurs og vesturs er úr stofu.
Eign getur verið laus við kaupsamning. Eign sem vert er að skoða
Nánari lýsing:
Hol: Flísar á gólfi, fatahengi.
Stofa / Borðstofa: Bjart rúmgott rými flísar á gólfi fallegt útsýni er frá stofu, gengið er úr borðstofu út á svalir.
Eldhús: Innréttingar gott skápa og vinnupláss, flísar á gólfi.
Gangur: Flísar á gólfi
Herbergi I: Harðparket á gólfi.
Herbergi II: Góðir fataskápar, harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Innrétting, walk in sturta upphengt salerni, gert ráð fyrir þvottavél á baðherbergi.
Svalir: Rúmgóðar svalir m/ svalalokun, stærð 13 m2 svalir eru ekki í m2 stærð eignar.
Bílskúr: Rafmagn, hiti og vatn er í bílskúr stærð 16,2m2
Geymsla: Sér geymsla er í sameign, stærð geymslu er 6,3m2
Sameign: Þvotta og þurrkherbergi er í sameign, ásamt hjóla og vagnageymslu.
Skipt hefur verið um glugga, gler og útihurð á suðurhlið stigahúss
Húsið er klætt viðhaldslítilli klæðningu.
Seljendur hafa ekki búið í eigninni. Hluti af innbúi getur fylgt með í kaupum á eign.
Á baklóð er stór leikvöllur fyrir börn.
Fjöldi bílastæða er á lóð fyrir framan hús.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Matthea í síma 695-3502, sms@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.