Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:
Mjög björt og vel skipulögð 116,9 fm. fimm herbergja endaíbúð á 1. hæð á Grettisgötu 98, 105 Reykjavík. Aðeins fimm íbúðir eru í stigahúsinu, ein íbúð er á hverri hæð.
Húsið hefur fengið mjög gott viðhald á síðastliðnum árum ( árið 2021-2022) var húsið múrviðgert og járn endurnýjað á þaki ásamt því að gluggar voru endurnýjaðir eftir þörfum.
Allir gluggar í íbúðinni sjálfri voru endurnýjaðir að undanskildum tveim gluggum inn í borðstofu og litla glugganum inn í stofu. Nýju gluggarnir eru með upprunalegu póstalaginu, sem er til þess gert að hleypa meiri birtu inn.
Seljendur hafa átt þessa íbúð frá árinu 2003, á þeim tíma hafa þau m.a látið stækka hurðarbil inn í stofu, viðurkenndir aðilar voru fengnir til að mæla burðarþol og bitar settir í burðarvegginn. Gólfefni voru fjarlægð og íbúðin flotuð allstaðar nema í svefnherbergjum og inn á baðherbergi. Eldhúsinnrétting var endurnýjuð. Nýtt rafmagn var dregið í og ný rafmagnstafla sett upp. Nýr myndadyrasími var nýlega settur upp.
Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.is
Smelltu á linkinn til að skoða íbúðina í 3DNánari lýsing: Komið er inn í forstofu, þar inn af er rými sem hægt væri að útbúa sem gestasalerni. Það rými er í dag notað fyrir yfirhafnir. Opið hol tengir svo saman eldhús, baðherbergi, stofu, borðstofu og svefnherbergin þrjú.
Herbergin eru þrjú, eitt af því er opið rými sem nýtt hefur verið sem sjónvarpsherbergi og vinnuaðstaða. Auðvelt að setja hurð þar og eða sameina rýmið og útbúa eitt stórt svefnherbergi. Hjónaherbergið er mjög rúmgott með fataskápum, dúk á gólfi og glugga á tvo vegu. Þriðja herbergið er líka mjög rúmgott með dúk á gólfi og fatarými inn af herberginu. Stofan og borðstofan liggja saman með rennihurð þar á milli, bæði rýmin eru mjög björt og rúmgóð með stórum gluggum. Út frá borðstofu er útgengi út á suðursvalir. Í borðstofu eru gluggar í tvær áttir, hurð og rennihurð. Auðvelt væri að nýta það rými sem fjórða svefnherbergið. Baðherbergið er með flísum á gólfi og á hluta af veggjum og upp meðfram baðkarinu. Handlaug og eldri speglaskápur þar fyrir ofan og salerni þar við hlið. Opnar speglahillur þar á móti. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu. Eldhúsið er mjög rúmgott og bjart með borðkrók og glugga í enda þess. Innrétting er á móti hvor annarri, gott skápa- og vinnupláss. Bökunarofn, helluborð og vifta. Skolvaskur og innbyggð uppþvottavél. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu. Í kjallara, er sameginlegt þvottahús og sér geymsla íbúðar.
Um er ræða virkilega skemmtilega og fallega eign á vinsælum stað í miðborginni með alla helstu verslun og þjónustu í göngufæri. Skólar á öllum stigum í nágrenninu ásamt fallegum útivistarsvæðum eins og Klambratúnið, Öskjuhlíðina og í Hljómskálagarðinn. Þá hefur átt sér stað mikil uppbygging og endurnýjun á svæðinu við Hlemm og þar í kring.
Nánari upplýsingar: Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali í síma 661-6056, gulli@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.