RE/MAX / Júlían J. K. Jóhannsson Lgf. (sími 823 2641 & julian@remax.is) kynna: Bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja sérhæð að Langholtsvegi 146, 104 Reykjavík með sérinngangi. Rúmgóð íbúð, skráð 97 fm, með afgirtum sameiginlegum garði með palli í rólegum botnlanga.Skoðaðu eignina í 3D hér. Nánari lýsing eignar:Forstofan er með dökkum flísum sem fljóta inn í eldhús, gang og baðherbergi.
Eldhúsið er með hvítum skápum og dökkum bekkjum. Innbyggð uppþvottavél sem fylgir ásamt stórum amerískum ísskáp sem einnig fylgir.
Stofa og borðstofa eru björt rými með gluggum í suður og flottu útsýni. Eldra parket er á rýminu og útgengt er þaðan út á rúmgóðar svalir.
Hjónaherbergið er með parketi á gólfi og skáp. Þrefalt gler er í gluggum á norður hlið.
Barnaherbergið er með parketi á gólfi og skáp sem fylgir.
Baðherbergið er nýlegt með dökkum flísum á gólfi og upphengdu salerni. Baðkar með sturtu og hvít innrétting, veggskápur og handklæðaofn.
Geymsla fylgir íbúðinni í kjallara. Í sameign er jafnframt snyrtilegt þvottahús, hjólageymsla og útgengt út í garð af neðstu hæð.
Bílastæði fylgir eigninni.
Stutt er í alla helstu þjónustu eins og leikskóla, grunnskóla, menntaskóla og ýmsar verslanir. Bókið skoðun í síma 823-2641 eða á julian@remax.is - Júlían J. K. löggiltur fasteignasali
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Remax fasteignasala sími 477-7777. www.remax.is1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.