Fasteignasalarnir Vernharð Þorleifsson og Magga Sigríður kynna mjög fallegt 153,6 fm mikið uppgert einbýlishús sem telur hæð og ris á 1.600 fm eignarlóð að Sólbraut 4, Reykholti, í Bláskógabyggð. Fimm svefnherbergi eru í húsinu.
Annar hluti hússins var byggður árið 1940 og er steyptur, veggir og þak. Hinn hluti hússins var byggður síðar og er um að ræða timburhús á steyptum grunni. Húsin eru samtengd og mynda eitt hús.
Fyrir aftan húsið er skemma sem sveitafélagið Bláskógabyggð á og notar sem geymslu. Skemman var tekin í gegn í fyrra og meðfylgjandi myndir sýna hana fyrir og eftir endurbætur.Ljósleiðaratenging er í húsinu.Þetta er upplagt tækifæri til að eignast glæsilegt einbýlishús á einu vinsælasta ferðamannasvæði landsins, steinsnar frá Friðheimum, Reykholtslaug, verslun, þjónustu og öllu sem Reykholt hefur upp á að bjóða.Frekari upplýsingar veita Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í síma 699-7372 / venni@remax.is og Magga Gísladóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-7494 / magga@remax.isKíktu í heimsókn til okkar á Facebook eða
á Instagram
Nánari lýsing
Neðri hæð
Forstofa: björt og opin forstofa með gluggum sitthvoru megin við útidyrahurð með parketi á gólfi.
Sjónvarpshol: úr forstofu er gengið inn í sjónvarpshol með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi: rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi: með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: með fallegri HTH innréttingu, stórum spegli með innfelldri lýsingu, sturtu, upphengdu salerni og flísum á gólfi.
Geymsla: með glugga og parketi á gólfi.
Eldhús: eldhúsinnrétting frá HTH og borðplötur frá Fanntófell. Undirlímdur vaskur og niðurfellt helluborð. Innfeldur ísskápur, frystir og uppþvottavél. Eyja með helluborði.
Stofa: í opnu rými með eldhúsinu með parketi á gólfi og rennihurð út á stóran viðarpall.
Þvottahús: með skáp og vinnuborði, forhitari, flísar á gólfi og útgengi á baklóð.
RishæðÚr gangi er teppalagður stigi upp í ris eldra hússins. Þar eru
tvö rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfi og litlu holi á milli. Úr þvottahúsi er hringstigi upp í ris nýrra hússins sem er yfir hjónaherbergi. Þar er
rúmgott svefnherbergi undir súð með góðri lofthæð í miðjunni.
Stór timburverönd er framan við húsið með skjólveggjum.
Endurbætur seinustu áraAð innan:Nýtt eldhús og baðherbergi.
Ný gólfefni, Quikstep harðparket frá Harðviðarval. Flísar á votrýmum frá Álfaborg.
Nýjar innihurðir, hvítar frá Harðviðarval.
Rafmagn endurnýjað, allt í töflu, raflagnir, rofar og tenglar.
Allar hitalagnir, ofnar og neysluvatnslagnir endurnýjaðar.
Að utan:Húsið var nýlega klætt og einangrað að utan. Öndunardúkur undir klæðningu og klætt með standandi bandsagaðri timburklæðningu.
Nýir gluggar, gler og útihurðir. Járn á þaki er nýmálað.
Útiljós frá S Guðjónsen.
Lagt er fyrir myndavélakerfi að utanverðu.
Lagt er fyrir hleðslustöð á hlið hússins.
Allar skólp og dren lagnir voru endurnýjaðar í júní 2024 alla leið niður að lóðamörkum.
Búið er að jarðvegsskipta bílaplani og innkeyrslu.
Í Reykholti er m.a. skóli, leikskóli, verslun, sundlaug og matsölustaðir. Golfvöllurinn á Flúðum er í næsta nágrenni einnig ýmsir vinsælir ferðamannastaðir á Suðurlandi eins og Friðheimar.