Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir:Bjarta og vel skipulagða 74,5 fm þriggja herbergja hæð á fyrstu hæð (miðhæð) með sérinngang við Kaldakinn 24 í Hafnarfirði. Eignin skiptist í anddyri, eldhús og stofu, svalir, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
// Bílskúr.
// Næg bílastæði fyrir utan.
// Stutt í allt þjónustu.
// Skólar og leikskólar í göngufæri.
// Mikið endurnýjað að innan sem utan.Hér getur þú gengið í gegnum eignina í 3D: Ýtið hér Hérna er upplistun af framkvæmdum frá seljanda.
2026 - Bílskúr uppsteyptur
2025 - Parket slípað og lakkað
2025 - Sparslað, málað og nýir gólflistar
2024 - Pallur og skjólveggur í garði
2023 - Ný útidyrahurð
2023 - Sett ný svalahurð og gluggar í kring
2023 - Nýjir gluggar í stofu og eldhúsi
2022 - Dren og skólp
2022 - Bílaplan steypt
2022 - Pallur gerður fyrir framan hús
2021 - Baðherbergi endurnýjað
Nánari lýsing: Nýlegt eikarparket er á allri íbúðinni fyrir utan baðherbergi og þvottahús.
Anddyri: Flísar á gólfi og með fatahengi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Er með salerni, baðkari með sturtuaðstöðu, hvítri innréttingu og speglaskáp.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, er rúmgott, stórum hvítum fataskáp.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og tvöföldum hvítum fataskáp og útgengi út á svalir.
Stofa: Parket á gólfi, er rúmgóð í opnu rými sem er tengt við eldhús.
Eldhús: Parket á gólfi, falleg innrétting með miklu skápa og borð plássi.
Þvottahús: Sér þvottahús er innan íbúðar, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Nýtist einnig sem geymsla
Bílskúr: Er 32 fm og verður honum skilað full kláruðum að utan, búið að setja glugga og hurð.
Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.