Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (s:662-6163 netfang: bjarni@remax.is) kynnir glæsilega og bjarta 3ja herbergja íbúð með sér inngangi ásamt stæði í bílageymslu við Skipalón 25 í Hafnarfirði. Þvottahús innan íbúðar. Rúmgóður sólpallur. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 91,4fm auk 10,2fm geymslu, samtals 101,fm.
*SMELLTU HÉR FYRIR NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA Nánari lýsing:Forstofan er rúmgóð með flísalögðu gólfi og fallegum innbyggðum sérsmíðuðum skápum úr eik.
Eldhúsið er opið inn í stofu með fallegri sérsmíðaðri innréttingu úr eik með miklu skápaplássi og ljúflokunum á skúffum, granítborðplata. AEG helluborð með viftu yfir, AEG ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél, gert ráð fyrir háum ísskáp í innréttingu, eyja sem hægt er að sitja við með skúffum með ljúflokunum, granít borðplata, parket á gólfi.
Stofan er björt með útgengi út á sólpall, parket á gólfi.
Hjónaherbergi með fjórföldum fataskáp, parket á gólfi.
Barnaherbergi með tvöföldum fataskáp, parket á gólfi.
Þvottahús með flísalögðu gólfi, borðplata með skolvaski, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, þvottasnúrur og hillur.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, baðkar með sturtuaðstöðu, sérsmíðuð eikar innrétting með granít borðplötu, hvítum vaski og spegli fyrir ofan, upphengt salerni, handklæðaofn, opnanlegur gluggi.
Bílakjallari: mjög rúmgott bílastæði merkt B20, tengi fyrir hleðslustöð, mjög gott aðgengi.
Geymsla í kjallara & sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Húsgjald sem greitt er mánaðarlega er er 26.190 kr á mánuði. Innifalið í húsgjöldum er allur hitakostnaður, þrif sameignar, þrif sorpgeymslu rafmagn í sameign, húseigandatrygging og allur almennur rekstur. Engar yfirstandandi framkvæmdir né fyrirhugaðar. Góð inneign í hússjóð.
Sérsmíðaðar innréttingar frá Brúnás. Granít gluggakistur. Myndavéladyrasími. Bílakjallarinn er upphitaður og innangengt beint frá stigagangi/lyftu. Þetta er virkilega falleg eign í góðu húsi sem vert er að skoða.
Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar, sjá upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.