RE/MAX Ísland logo
Skráð 8. jan. 2026
Söluyfirlit

Stálhella 18

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
58.5 m2
Verð
29.900.000 kr.
Fermetraverð
511.111 kr./m2
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
1111215
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Stálgrind + Yleiningar
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
4
Vatnslagnir
nýbygging
Raflagnir
nýbygging
Frárennslislagnir
nýbygging
Gluggar / Gler
nýbygging
Þak
nýbygging
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
-
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
0 - Úthlutað
Erling Proppé lgf. & RE/MAX kynna vönduð iðnaðar-/geymslubil á frábærri staðsetningu aðeins í 1-2 mín fjarlægð frá Reykjanesbrautinni, Stálhellu 18 í Hafnarfirði.

Húsin eru hönnuð með áherslu á gæði, endingu og hámarks hljóð- og varmaeinangrun, þar sem notast er við 160 mm steinullar einingar í þaki ásamt tvöföldum bræddum IKO þakpappa og epoxy gólf með gólfhita.
Afgirt og öruggt svæði með aðgangsstýrðum hliðum og myndavélakerfi.

Hafið samband til að fá nánari upplýsingar eða farðu á söluvefinn www.stalhella.is 
Erling Proppé .lgf   //  690-1300  //  erling@remax.is 

- SMELLTU HÉR TIL AÐ FARA Á SÖLUVEF VERKEFNISINS - 

Helstu atriði:
  • Engin virðisaukaskattskvöð!
  • Afgirt svæði með 2 aðgangsstýrðum hliðum og öryggismyndavélakerfi
  • 160 mm steinullar þak einingar, ásamt tvöföldum bræddum IKO þakpappa - betri hljóð- og varmaeinangrun.
  • 120mm útveggjum og 100mm í innveggjum (C4 tæringarflokkur að utan, C2 innan) - betri hljóð- og varmaeinangrun.
  • Möguleiki fyrir kaupanda að setja millilofti yfir allt bilið.
  • Hágæða epoxy gólf með gólfhita
  • Sér rafmagnsmælir fyrir hvert bil – borgaðu aðeins fyrir það sem þú notar.
  • Hágæða ál hurðir og gluggar frá Raynaers
  • Bílskúrshurð 3,5m á breidd og 3,2m á hæð, ásamt öxuldrifnum hurðaopnara frá Wisniowski (C4 tæringarflokkur að utan, C2 innan)
  • Lagt inn í hvert bil fyrir interneti
  • Frábært aðgengi að svæðinu aðeins 1–2 mínútur frá Reykjanesbraut

- VANDAÐUR OG TRAUSTUR BYGGINGARAÐILI WWW.REISING.IS - 

Tæknileg lýsing:
Milliloft

Ath. Ekkert milliloft er í þessum húsum, húsið er samt sem áður burðarlega hannað til að þola milliloft yfir allt bilið, festingar til staðar. Vilji kaupandi setja upp milliloft og skrá það þarf hann að gera það og sækja um leyfi fyrir því hjá viðeigandi stofnunum eftir lokaúttekt á sína ábyrgð.

Burðarvirki, veggir & þak 
Húsin eru úr stálgrind, á staðsteyptum sökklum. Útveggir eru úr 120mm þykkum samlokueiningum og milliveggir í 100mm þykkt, þær eru úr harðpressaðri steinull 100kg./m3 klædd með 0,6mm þykku alumzinki í RAL7016 anthracite gráum að utan, RAL9010 (Pure white) að innan. Einingarnar koma í tæringarflokki C4 að utan en C2 að innan. Þak er gert úr 160mm þykkum steinullareiningum (harðpressuð steinull 100kg/m3) með tvöföldu bræddu lagi af IKO pappa frá Þaktak ehf., RAL9010 (Pure white) að innan.

Pípulagnir
Lagnir eru utanáliggjandi og sýnilegar, skolvaskur verður uppsettur með heitu og köldu vatni og gólfhiti til upphitunar. Skólp stammi fyrir salerni verður í gólfi í horni. (Salerni ekki uppsett) Gert er ráð fyrir lagnaendum fyrir td. Salerni.
Hitakostnaður eininga er sameiginlegur og skiptist hlutfallslega eftir eignarhluta í samræmi við eignaskiptasamning. 

Raflagnir
Raflagnir eru utanáliggjandi og sýnilegar, greinatafla verður uppsett með 3-fasa rafmagni og einn uppsettur 3-fasa rafmagnstengill þar við hlið. Ljós í lofti, rafmagnstengill í lofti fyrir hurðaopnara (öxuldrifinn hurðaopnari fylgir),  ljósarofi og rafmangstengill við hurð. Einnig verður útilýsing uppsett og tengd við sólúr. Sér mælir er fyrir hverja einingu, staðsettur í inntaksrými hússins.
Tvö aðgangsstýrð hlið uppsett af byggingaraðila, öryggismyndavélakerfi verður einnig uppsett og sett í umsjá húsfélags sem mun mæta mánaðarlegum kostnaði með húsgjöldum.

Internet
Lagt inn í hvert bil fyrir háhraða interneti.

Iðnaðarhurð & gönguhurð
Iðnaðarhurð er 3,5 m á breidd og 3,2 m á hæð með gluggaflekum, öxuldrifinn bílskúrsmótor, frá Wisniowski. Hurðin er í tæringarflokki C4 að utan, C2 að innan. Við inngangshurð er skýli.

Gönguhurð og gluggar
Ál gönguhurð og gluggar eru úr efstu hillu frá Raeynars. Gluggi fyrir ofan gönguhurð ásamt stórum gluggum ofan við bílskúrshurð með stórum opnanlegum fögum.
Endabil eru aukalega með glugga með opnanlegu fagi á gafli hússins að ofan og neðan. 

Bílastæði 
Fjöldi bílastæða verður á lóð og eru þau í sameign allra, bílaplan hvers matshluta verður malbikað samhliða framkvæmdum þess matshluta. 

Lóð 
Lóðin verður afgirt við byggingu fyrsta matshluta með tveimur aðgangsstýrðum aðalhliðum. Skipulagssvæðið við Kapelluhraun 2.áfanga er innan varúðarsvæðis VA1 frá álverinu í Straumsvík og eru þar takmarkanir á notkun bygginga.

Framkvæmdir eftir afhendingu
Nokkrir matshlutar verða á lóðinni og munu þeir verða byggðir samtímis eða hver á eftir öðrum. Framkvæmdir á öðrum matshlutum gætu staðið yfir eftir afhendingu einstakra bila. Mun byggingaraðili reyna að haga svæði í kringum þann matshluta á þann hátt að eigendur verði fyrir sem minnstum truflunum. 

Allt myndefni birt með fyrirvara, það á að endurspegla endanlegt útlit eins og hægt er, einstaka atriði og útfærslur geta þó breyst. – byggingarnefndarteikningar gilda.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Erling Proppé lgf. // 690-1300 // erling@remax.is


Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.500 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til  fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.
 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Straumhella 10B Bil 07
221 Hafnarfjörður
57.4 m2
Lager - Iðnaðarhúsnæði
503 þ.kr./m2
28.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Straumhella 10B bil 06
221 Hafnarfjörður
57.4 m2
Lager - Iðnaðarhúsnæði
503 þ.kr./m2
28.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Straumhella 10B Bil 04
221 Hafnarfjörður
57.4 m2
Lager - Iðnaðarhúsnæði
503 þ.kr./m2
28.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Straumhella 10B bil 03
221 Hafnarfjörður
57.4 m2
Lager - Iðnaðarhúsnæði
503 þ.kr./m2
28.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin