RE/MAX Ísland logo
Skráð 22. maí 2025
Söluyfirlit

Vefarastræti 7-9

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
102.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
78.500.000 kr.
Fermetraverð
768.854 kr./m2
Fasteignamat
73.900.000 kr.
Brunabótamat
66.670.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Bjarni Blöndal
Bjarni Blöndal
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2017
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2358737
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
2,54
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (s:662-6163 netfang: bjarni@remax.is) kynnir til sölu fjögurra herbergja horníbúð á efstu hæð í lyftuhúsi auk stæðis í bílakjallara við Vefarastræti 7-9 , Mosfellsbæ. Frábært útsýni. Góð eign á frábærum stað í Helgafellslandinu í Mosfellsbæ. Stutt er í skóla, leikskóla, sundlaug, líkamsrækt og alla helstu þjónustu. Fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði í nágrenninu.

Eignin er skráð 102,1fm, þar af er 7,9fm geymsla innan eignarinnar. Stæði í bílageymsluhúsi. Eignin skiptist í forstofu, geymslu, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu og baðherbergi. Hjóla- og vagnageymsla í sameign. 

Nánari lýsing:
Anddyri: komið er inn í parketlagt anddyri með fataskáp. 
Stofa og borðstofa: bjartar með fallegum stórum hornglugga sem setur skemmtilegan svip á stofuna, parket á gólfi.
Eldhús: er aðskilið með eyju frá stofunni, HTH innrétting, nýlegur vaskur og borðplata, eyja með helluborði og rafmagnstengi, pláss fyrir nettan vínkæli.
Hjónaherbergi: með skápum, parketlagt, útgengt á suður svalir.
Barnaherbergin: eru tvö, bæði með fataskápum, parket á gólfi.
Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf, innrétting með plássi undir borðplötu fyrir þvottavél og þurrkara, upphengt wc, handklæðaofn, sturta, nýlega endurnýjað: vaskur, blöndunartæki og borðplata. 
Geymsla: rúmgóð geymsla er innan íbúðar, staðsett við anddyrið. 
Hjóla- og vagna geymsla: er í sér skúr við húsið.
Bílageymsla: rúmgott stæði, tengi fyrir rafbíla.
Búið að endurnýja allar innstungur og rofa fyrir rafmagn.

Húsið er þriggja hæða íbúðarbygging, byggt 2017, með 35 íbúðum auk bílakjallara og sameiginlegra rýma sunnan við Helgafell. Einn heitavatnsmælir er fyrir sameiginlegan hita, hver eign greiðir af þeim mæli samkvæmt hlutfallstölu. Hitalögn er í gangstétt fyrir framan stigahússinnganga, í akstursrampi, í útitröppum og bílastæði fyrir hreyfihamlaða. Eigninni fylgir stæði í bílageymsluhúsi með tengi fyrir rafbíla. Fjórar sameiginlegar hleðslustöðvar húsfélagsins er að finna bæði bak við og fyrir framan húsið vestan megin. Leiktæki í garði aftan við húsið. Helgafellsskóli er í næsta húsi þar sem er bæði leik og grunnskóli. Nálægð við náttúruna og Álafoss-kvosina, perlu Mosfellsbæjar. Stutt í fallegar gönguleiðir.

Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar, sjá upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Byggt 2017
Fasteignanúmer
2358737
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
6
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Brunabótamat
7.420.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2025 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin