Vernharð Þorleifsson og Magga Gísladóttir löggiltir fasteignasalar á RE/MAX kynna mikið endurnýjaða 4ra - 5 herbergja endaíbúð á þriðju hæð í 7 íbúða fjölbýli. Eigninni fylgir bílskúr og sér geymsla á fyrstu hæð. Í sameign er þvottahús, hjólageymsla og herbergi á geymslugangi. Frábært útsýni er úr íbúðinni. Á seinustu árum er búið er að endurnýja eldhús, baðherbergi, gólfefni, hurðar og alla ofna (nema einn í þvottahúsi), rafmagnstengla og dósir og auka rafmagnstafla var sett í eldhúsið. Þakið var yfirfarið og lagað fyrir ca. 7-10 árum. Farið var í ástandsskoðun á sameigninni á haustmánuðum 2021 og í kjölfarið í framkvæmdir 2022. Var þá allt tréverk málað, skipt um glugga og hurðir þar sem þurfti, öll svalagólf endurmúruð og máluð, skipt um handrið á svölum og allt svalajárn ryðvarið, skipt um þakrennur, sprunguviðgerðir á múrhúð og steníklæðning þvegin. Skipt var um rúður í gluggum og opnanlegum fögum á allri norðurhlið íbúðar á sama tíma. Samtals 6 rúður.
Nánari lýsing: Forstofa: Góður fataskápur. Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi, fatahengi og skúffueining í hjónaherberginu og fataskápur í öðru barnaherberginu. Baðherbergi: Nýlega flísalagt gólf, steyptur sturtubotn, handklæðaofn og falleg innrétting. Eldhús: Nýlega endurnýjað, gott skápapláss, ný spanhella og nýr háfur. Borðkrókur við gluggann og mikið útsýni. Hiti í gólfi og sér rafmagnstafla. Stofa: Mjög rúmgóð stofa með útgengi á svalir. Gert er ráð fyrir "húsbóndaherbergi" á teikningu en ef það hefur einhverntíman verið þá hefur það nú verið fjarlægt. Þvottahús: Innaf eldhúsi. Góð vinnuaðstaða og smá geymslupláss. Bílskúrinn er innbyggður í húsið austanvert. Í bílskúr er hiti, vaskur, heitt/kalt vatn og rafdrifin bílskúrshurð með gönguhurð. Sérgeymslan á fyrstu hæðinni er skráð 5,2 fm.
Þetta er frábær fjölskyldueign á góðum stað í Breiðholtinu.
Frekari upplýsingar veitir Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í síma 699-7372 eða venni@remax.is og Magga Gísladóttir löggiltur fasteignasali í síma 698 7494 eða magga@remax.is Kíktu í heimsókn til mín á Facebook eða á Instagram
Það sem gæti þurft að gera á næstunni í íbúðinni er að skipta um heita og kaldavatnslagnir í sturtu, þeim megin sem blöndunartækið er. Það er svo þunn múrhúð undir epoxý klæðningu að vatn hefur náð inn að lögnum og sjást ryðblettir á epoxýklæðningu. Búið að fá mat frá Sjóvá sem sögðu að þetta væri ekki leki innan frá, ekkert stress að laga en er útlitslýti.