RE/MAX Ísland logo
Skráð 8. júní 2026
Söluyfirlit

Flétturimi 25

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
103.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
81.900.000 kr.
Fermetraverð
794.374 kr./m2
Fasteignamat
70.300.000 kr.
Brunabótamat
55.280.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Stefán Jarl Martin
Stefán Jarl Martin
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1992
Þvottahús
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2039910
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
óvitað
Raflagnir
óvitað
Frárennslislagnir
óvitað
Gluggar / Gler
í lagi - skipta þarf um gler í stofuglugga
Þak
Skipt um járn og pappa 2025
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
1
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Stefán Jarl lgf. og Erling Proppé lgf. kynna ásamt RE/MAX: Sérlega glæsilega og mikið endurnýjaða þriggja herbergja íbúð ásamt stæði í lokaðri bílageymslu á friðsælum stað við Flétturima 25. Eignin hefur gengist undir miklar endurbætur með arkitektahönnun á alrými, eldhúsi og baðherbergi en hönnun er frá virtum arkitekt frá Brasilíu að nafni Julliana Wagner. Þar var m.a. endurnýjað gólfefni, rafmagn, eldhús, baðherbergi, allar innréttingar og hurðar. Íbúðin einkennist af nútímalegum lausnum og vönduðu efnisvali sem skapar heildstæða og hlýlega upplifun. Bjart og opið alrými tengir eldhús, borðstofu og stofu saman, með útgengi á suðursvalir sem snúa að skjólsælum bakgarði. Tvö svefnherbergi, glæsilegt baðherbergi og rúmgott þvottahús, allt hannað með notagildi og fagurfræði í huga. Þessi vandaða eign býður upp á þægilegt og fjölskylduvænt umhverfi, með greiðan aðgang að þjónustu og grænum svæðum í nágrenninu

Eignin er skráð skv. fasteignamati HMS 103,1 m2, þar af eru íbúðarfermetrar 90,6 m2 og stæði í bílageymslu skráð 12,5 m2 .

Aðalrými og inngangur
Hlýleg hönnun einkennir þetta bjarta og opna rými þar sem anddyri, eldhús, borðstofa og stofa mynda heildstæða og notalega umgjörð.
Anddyri: Parket á gólfi og fataskápur er við innganginn.
Eldhús: Glæsilegt eldhús með arkitektahönnun, dökkum innréttingum og stílhreinum, ljósum borðplötum úr kvartsi. Stór eldhúseyja með barstólum beggja megin. Steinplötur eru á veggjum milli efri og neðri skápa, ásamt fallegri panelklæðningu í lofti sem rammar inn svæðið. Ríkulegt náttúruljós auk Led vinnulýsingar. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél og ofn og örbylgjuofn í vinnuhæð.
Stofa og borðstofa: Rúmgott og bjart alrými með parketi á gólfi. Stofa og borðstofa tengjast eldhúsi í opnu flæði og eru með stórum gluggum sem veita mikla náttúrulega birtu og útgengi á svalir. Hluti af vegg í stofu er klæddur fallegum viðarpanel og steinplötu.

Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og fallegri panelklæðningu á einum vegg sem gefur herberginu hlýlegan blæ. Góðir skápar eru í herberginu.
Svefnherbergi: Með parketi á gólfi, hlýlegu veggfóðri og góðu skápaplássi.
Baðherbergi: Algjörlega endurnýjað baðherbergi í arkitektahönnun með stórum marmaramynstruðum steinflísum á gólfi og veggjum. Svört blöndunartæki, sturta með glervegg, innrétting með frístandandi handlaug og upphengdu salerni. Handklæðaofn er á baðherberginu.
Þvottahús: Rúmgott þvottahús innan íbúðar með flísum á gólfi, góðu vinnuplássi á borðplötu, subway flísum á vegg og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Nýtist vel sem geymsla innan íbúðar.

Svalir: Suðursvalir með harðviðarflísum á gólfi. Hér er pláss fyrir útihúsgögn og grill. 
Umhverfi og staðsetning: Íbúðin er staðsett í rólegu og grónu hverfi með grænum svæðum í kring. Nægt bílastæði er við húsið og stutt í helstu þjónustu, skóla og afþreyingu.

Bílastæði: Eigninni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu asamt sérmerktu stæði beint fyrir utan inngang hússins. Einnig fylgir pláss í sameiginlegri dekkjageymslu í bílakjallara.

Sameign: Nýlegur myndavéladyrasími ásamt öryggismyndavélum við aðalinngang og inngang frá bakgarði í gegnum hjólageymslu.

Viðhald og endurbætur
Helstu framkvæmdir 2021: Íbúðin var að mestu endurnýjuð á miðju ári 2021. Þar var gerð arkitektahönnun á alrými, eldhúsi og baðherbergi. Einnig voru gólfefni, rafmagn, eldhús, baðherbergi, allar innréttingar og hurðar endurnýjaðar. Grófir hraunveggir voru heilspartlaðir og gólf flotuð. 2025 var járn og pappi á þaki endurnýjað.
Byggt 1993
12.5 m2
Fasteignanúmer
2039910
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Númer eignar
11
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.530.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Frostafold 25
112 Reykjavík
142.8 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
412
567 þ.kr./m2
80.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Flétturimi 11
112 Reykjavík
108.9 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
311
734 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Starengi 28
112 Reykjavík
111.5 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
412
717 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Reyrengi 2
112 Reykjavík
104.4 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
413
756 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin