Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir: Virkilega reisulegt og fallegt 195.1 fm einbýlishús með auka íbúð með sérinngang ásamt bílskúr að Hraunkambi 1 í Hafnarfirði. Mjög góð staðsetning innst í lokuðum botnlanga. Eignin skiptist í 57 fm kjallara, 54,5 fm hæð, 46,8 fm ris og 36,8 fm bílskúr samtals 195,1 fm. Kjallari er steyptur en hæð og ris timbur sem er klætt að utan með bárujárni. Bílskúr er steyptur.
Mjög góð staðsetning miðsvæðis í Hafnarfirði með miðbæinn í stuttu göngufæri. Í næsta nágrenni er fjölbreytt verslun og þjónusta. Grunn og leikskóli eru örsuttu göngufæri ásamt útvistarsvæðinu á Víðstaðatúni.
// Auka íbúð sem hægt er að leigja út.
// Stór bílskúr sem er í útleigu núna á 130.000 kr.
// Mikið endurnýjuð eign bæði að utan sem innan.
// Frábær staðsetning.
// Mjög stutt í alla verslun og þjónustu.Hér getur þú gengið í gegnum eignina í 3D Hér getur þú gengið í gegnum eignina í 3D á auka íbúð.Endurbætur og framkvæmdir samkvæmt seljanda. 2024Miklar endurbætur voru gerðar á húsinu. Á neðstu hæð var útbúin sér stúdíóíbúð með sérinngangi, baðherbergi, eldhúsaðstöðu, flísalögðum gólfum, innbyggðri geymslu og gólfhita í gangi.
Á efri hæðum var einangrun í útveggjum endurnýjuð með steinull, veggir klæddir með gifsi, spartlaðir og málaðir. Nýjar OSB-gólfplötur og vínylgólf voru lögð. Allar innihurðir voru endurnýjaðar og gluggar málaðir.
Efsta hæð var endurskipulögð í þrjú svefnherbergi og endurnýjað baðherbergi með nýjum flísum, baðkari, regnsturtu og nýjum búnaði. Einnig var útbúin gestasnyrting á aðalhæð.
Raflagnir og lagnir í eldri hluta hússins voru endurnýjaðar, þar á meðal neysluvatns- og frárennslislagnir innanhúss. Hitakerfið var einnig endurbætt að hluta og nýir ofnar settir upp.
2025Bílskúrinn var endurbættur, meðal annars með þéttingu á þaki, OSB-klæðningu á veggjum og endurmálun gólfs.
Ný verönd með grillaðstöðu var byggð aftan við húsið og garðurinn að hluta lagður með hraungrýti. Einnig var útbúinn nýr pallur fyrir sorpílát undir útistiganum.
2026Ný eldhúsinnrétting var sett upp með steinborðplötu.
Eldri endurbætur
Árið 2007 var húsið einangrað og klætt að utan og þakið hækkað og einangrað. Árið 2003 var byggt við húsið og stiginn færður yfir í nýrri hluta þess.Nánari lýsing:Hæð:
Forstofa: Flísar á gólfi og með stórum fataskáp.
Hol: Með steyptu gólfi og tréstiga upp í ris og í kjallara.
Eldhús: Parket á gólfi, mjög falleg innrétting beggja megin með miklu skápa og borð plássi. Góður eldhús krókur við gluggann.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfi, björt og rúmgóð.
Gesta baðherbergi: Flísar á gólfi, handlaug og wc.
Ris:
Hjónaherbergi: Parket á gólfi. Mjög rúmgott með stóru fataherbergi.
Barnaherbergi 1: Parket á gófli og með fataskáp.
Barnaherbergi 2: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og hluta af veggjum. Falleg innrétting með handlaug. Bæði með sturtuklefa og hornbaðkari.
Kjallari:
Geymsla: Flísar á gólfi , mjög rúmgóð með mikið af hillum.
Þvottahús: Flísar á gólfi. Stór og falleg innrétting með skolvask og miklu skápa plássi. Þvottavél og þurrkari í vinnuhæð.
Nánari lýsing íbúð í kjallara:Forstofa: Flísar á gólfi og með fataskáp.
Herbergi/stofa: Flísar á gólfi og með fataskáp.
Eldhús: Flísar á gólfi, mjög falleg innrétting með miklu skápaplássi. Flísar á milli skápa, og lítill borðkrókur.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Falleg innrétting með handlaug, spegil, sturtuklefi og tengi fyrir þvottavél.
Bílskúr: Er 36,8 fm og með góðri lofthæð. Hurð er frá 2019 og með rafopnun. Heitt og kalt vatn.
Ljósleiðari er kominn inn í húsið.
Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.is Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.