RE/MAX og Bára Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali kynna: SNÆLAND 7, íbúð merkt 202, ÚTSÝNISSVALIR, ÞVOTTAHÚS INNAN ÍBÚÐAR, FATAHERBERGI OG GEYMSLA. Virkilega björt og falleg fjögurra herbergja íbúð með rúmgóðum svölum, fallegu útsýni, þvottaherbergi innan íbúðar, geymslu, fataherbergi/króki frá hjónaherbergi og snyrtilegri sameign. Eignin er staðsett innst í lokuðum botnlanga í rólegu og eftirsóknaverðu hverfi í Fossvogi með fallegum gönguleiðum í allar áttir þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttasvæði, verslunarmiðstöðina Kringluna, Skeifuna, Læknavaktina Austurveri og alla helstu þjónustu.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 101,2 m² sem skiptist í 92,6 m² íbúð og 8,6 m² geymslu.
Íbúðin er merkt 202 með fnr.2038172
Í sameigninni er sérgeymsla íbúðarinnar, hjóla- og vagnageymslur.
Sækja söluyfirlit HÉRErt þú í söluhugleiðingum? Hafðu samband hér á
bara@remax.is eða í síma 773-7404 og fáðu FRÍTT VERÐMAT á þína eign án skuldbindinga.
Nánari lýsing: Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús og stofu/borðstofu, svalir út frá stofu, hjónaherbergi með fatakróki, tvö barnaherbergi, geymsla og þvottaherbergi.
- Gengið er inn í forstofu með fataskápi, panel á vegg og parketi á gólfi.
- Eldhúsið er opið með eyju á gólfi og granít borðplötu, vönduðu helluborði og viftu. Það er í sameiginlegu rými með stofu/borðstofu. Gott skápapláss og parket á gólfum. Uppþvottavél fylgir.
- Stofan er opin og björt, samliggjandi borðstofu, með partketi á gólfi, og stórum gluggum með sólvarnargleri.
- Frá stofu er gengið út á mjög rúmgóðar svalir sem skarta glæsilegu útsýni til suðurs.
- Baðherbergið er flísalagt með sturtu, upphengdu salerni og handlaug með góðu skápaplássi.
- Hjónaherbergið er mjög rúmgott með partketi á gólfi og góðu fataherbergi/króki.
- Barnaherbergin eru parketlögð með fataskápi.
- Þvottahús er innan íbúðar en einnig er sérmerktur tengill/stæði fyrir þvottavél/þurrkara í þvottahúsi í sameign.
- Geymsla sem tilheyrir íbúðinni er á jarðhæð í sameign og er 8,6 m².
- Sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
Viðhald og endurbætur:2025 - Ný svalarhurð og sólvarnargler sett á suðurhlið.
2025 - Settir nýjir gluggar og gler á alla suðurhlið hússins.
2024 - Skipt um skólplagnir og dren.
2024 - Dyrasímar endurnýjaðir.
2024 - Gangstétt endurnýjuð fyrir utan hús og snjóbræðsla lögð í stéttina
2024 - Rör lagt frá húsi til að einfalda uppsetningu á hleðslustöðvum.
2023 - Tenglar endurnýjaðir í sameign og hreyfiskynjari á ljós í forstofu.
2020 - Baðherbergið endurnýjað. Upphengt salerni, "walk in" sturta, nýr handklæðaofn, ný rafmagnsvifta í lofttúðu, ný innrétting og blöndunartæki.
2020 - Rafmagnstafla endurnýjuð innan íbúðar.
2018 - Sprunguviðgerðir og málun.
- Nýlegar innihurðar eru í allri íbúðinni án þröskulda.
Engar yfirstandandi framkvæmdir hjá húsfélagi og engar væntanlegar framkvæmdir ákveðnar.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir:Bára Jónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
RE/MAX senter
Skeifan 17 / 108 Reykjavík
E-mail: bara@remax.is
Sími: 773-7404
Vegma mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband á bara@remax.is og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.Heimasíðan mínHeimasíða RE/MAXUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.