Guðbjörg Helga og Gylfi Jens kynna: Leifsgata 5, 101 Reykjavík.Björt og vel skipulögð mikið endurnýjuð 2ja herbergja íbúð í rólegri götu, rétt við Landspítalann og svo gott sem í bakgarði Hallgrímskirkju. Stutt er út á stofnleiðir RVK, í almenningssamgöngur og er öll nærþjónusta í göngufæri enda rétt við Skólavörðustíg og miðborgina. Íbúðin er laus við kaupsamning. Tilvalin fyrstu kaup. Búið er að sækja um endurmat hjá HMS, brunabótamat var hækkað og er beðið eftir útkomu á fasteignamati eftir gagngerar endurbætur á íbúðinni.
Tilvalin fyrstu kaup.
NÚVERANDI SKIPULAG SÉREIGNAR: Hol/gangur, stofa, herbergi, baðherbergi, eldhús, sérgeymsla í kjallara.
>> SÆKTU SÖLUYFIRLIT HÉR <<
>> SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍDD HÉR <<NÁNARI LÝSING:Fljótandi harðparket er á gólfum, flísar á baðherbergi. Hvítar hurðar.
Aðkoma er á jarðhæð sem er mitt á milli 1. hæðar og kjallara. Gengið er upp 6 þrep að íbúðinni sem er á 1. hæð til hægri.
Forstofa/ opið hol: Nýleg eldvarnarhurð er í íbúðina. Forstofan/opið hol tengir saman öll rými eignarinnar. Nýleg rafmagnstafla í forstofu.
Stofa: Björt og rúmar vel stofuhúsgögn og nett borðstofuborð. Stór og fallegur gluggi sem snýr út að Leifsgötu.
Herbergi: Rúmgott með stórum L-laga hornskáp (PAX) með drjúgu innihaldi, svo hann er með gott geymslupláss. Gluggi snýr inn í garð.
Eldhús: Endurnýjað eldhús, hvít innrétting með viðarborðplötu. Flísar eru á milli efri og neðri skápa. lýsing undir efri skápum. Gluggi með glerhillu. Keramik helluborð og bakaraofn staðsettur undir borðplötu, gufugleypir, innbyggður ísskápur með frysti. Vegghengt niðurfellanlegt borð á vegg. Búrskápur er í horni við inngang, uppgerður með svartlakkaðri hurð og gefur það eldhúsinu og íbúðinni sjarma og sál með tengingu við gamla tíma. Þar er styrking á rafmagni (viðbætur við rafmagnstöflu) og sést í nýjar lagnir sem eru þar utanáliggjandi faldar í skápnum og því vel aðgengilegar. Snilldarfrágangur með aðgengi.
Baðherbergi: Uppgert af núverandi eigendum. Ný glerhurð og gler á sturtu, endurnýjað salerni, handlaug, speglar og speglaklæddur skápur sem gefa rýminu aukna vídd. Afar vel nýttir fm. Flísar á gólfi og í sturtu.
Sérgeymsla: Er í kjallara hússins. Þar er vegghengdur gamall geymsluskápur, kalt vatn og niðurfallsrör. Íbúð er skráð 48,6 fm og þar ef er geymsla í kjallara 2,8 fm. Steypt gólf, viðarrimlar milli geymsla.
Sameign: Stigahúsið er snyrtilegt með nýlegu teppi. Sameiginlegt þvottahús í kjallara með sameiginlegum nýlegum þvottavélum og þurrkara, hjóla-og vagnageymsla með sérinngangi beint út í bakgarð þannig að það þarf ekki að fara tröppur að framanverðu, en þaðan eru nokkur þrep í kjallarann.
Um er að ræða fallega, mikið endurnýjaða og vel staðsetta eign með alla helstu þjónustu í göngufæri. SJÁ NÁNAR ENDURBÆTUR Í SÖLUYFIRLITIAllar upplýsingar veita:Guðbjörg Helga, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur s. 897 7712, gudbjorg@remax.is
Gylfi Jens, löggiltur fasteignasali og lögmaður s. 822 5124, gylfi@remax.is